Orðaheimurinn: The fidelity of a soft-structured intervention evaluated in Icelandic preschools
Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Inngangur: Nýlega hefur fjöldi fjöltyngdra barna á Íslandi aukist til muna og standa þessi börn frammi fyrir miklum áskorunum innan íslenska skólakerfisins. Orðaheimurinn er nýtt kennsluefni fyrir börn á leikskólaaldri, þýtt og staðfært úr Bandaríska kennsluefninu World of Words. Efnið nýtir samræðulestur til að kynna börnunum fyrir orðaforða og hugtökum úr sex mismunandi þemum yfir 18 vikna tímabil. Áhrif kennsluefnisins voru könnuð í íslenskum leikskólum í klasa slembiraðaðri samanburðarrannsókn (CRCT) í byrjun árs 2023. Aðferðir: Kennsluefninu, ásamt þjálfun í notkun þess, var úthlutað til fimm leikskóla og var markmið þessarar meistararannsóknar að meta meðferðarheldni í framkvæmd íhlutunarinnar meðal leikskólakennara í þessum leikskólum. Í þessari rannsókn voru myndbandsupptökur skoðaðar með tilliti til meðferðarheldni. Þetta fól í sér að greina 104 myndbandsupptökum af kennslustundum (21.5% af öllum kennslustundum rannsóknarinnar) þar sem 11 kennarar stýrðu kennslu fyrir 62 börn. Það að rannsaka meðferðarheldni er mikilvægt upp á að tryggja að íhlutun sé framkvæmd eins og lagt var upp með en einnig til að meta áreiðanleika árangurs á kennsluefninu. Ef ekki næst góð meðferðarheldni er erfitt að ákvarða hvort áhrif niðurstaðna stafi af íhlutuninni sjálfri eða vegna annarra þátta. Meðferðarheldni var metin á grundvelli fjögurra þátta: skammts íhlutunnar (e. dose), tryggð við aðalatriði íhlutunarinnar (e. adherence), gæði kennslunnar (e. quality) og viðbrögð barnanna (e. responsiveness). \nNiðurstöður: Skammtur íhlutunnar var metinn út frá mætingu barnanna í kennslustundirnar og mældist hún að meðaltali 80,2% (Sf=14,4%, Spönn=37,0-100,0%). Tryggð við aðalatriði íhlutunnar var metin með skráningarblaði sem útlistaði þau atriði sem mikilvæg voru að koma til skila til barnanna í hverri kennslustund. Samkvæmt mati kennara komu þeir 9,.3% (Sf=15,3%, Spönn=28,6-100,0%) atriða til skila í kennslustundum en samkvæmt mati rannsakanda var það ekki nema 56,5% (Sf=19,0%, Spönn=0,0-92,9%) fyrir sömu kennslustundir. Gæði voru metin út frá því hversu vel kennararnir tóku efnið til sín og gerðu það að sínu. Kennararnir fengu að meðaltali 3,9 af 5 mögulegum stigum fyrir gæði kennslu (Sf=0,8, Spönn=1,6-5,0) og gáfu niðurstöðurnar til kynna mikinn breytileika milli kennara. Viðbrögð barnanna voru metin út frá þátttöku og athygli þeirra í kennslustundum og fengu þau að meðaltali 3,9 stig af 5 mögulegum. \nUmræða og ályktanir: Á heildina litið sýndu niðurstöður fram á misgóða meðferðarheldni eftir mismunandi þáttum. Þó að skammtur meðferðar hafi verið tiltölulega hár (þó breytilegur) var tryggð við íhlutunina í meðallagi há og mjög breytileg eftir kennurum. Eins var mikið misræmi á milli sjálfsmats kennara og mats rannsakanda. Gæði og viðbrögð mældust tiltölulega há en sýndu bæði fram á töluverðan breytileika milli kennslustunda. Niðurstöður þessarar rannsóknar munu styðja við áreiðanleika túlkunar á helstu niðurstöðum úr CRCT rannsókninni og hjálpa til við að betrumbæta næstu útgáfur af Orðaheiminum með betri aðlögun kennsluefnisins fyrir íslenskt samfélag og aukinni meðferðarheldni.
Source: Skemman
Author: Björg Einarsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7051480777
