Ónæmisglóbúlín í kálfasermi og broddi íslenskra kúa
Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Kálfar fá ónæmisglóbúlín ekki yfir fylgju frá móður og því er mikilvægt að þeir fái það með broddi. Nauðsynlegt er að þeir fái það fyrstu 24 tímana frá burði þar sem meltingarfæri þeirra hætta eftir það að taka upp ónæmisglóbúlínin. Óbirtar mælingar á íslenskum kúabroddi hafa sýnt að ónæmisglóbúlín G sé í lægri kantinum og því er mikilvægt að athuga hvort að kálfarnir fái nægilegt magn ónæmisglóbúlína úr broddinum þar til þeir byrja að framleiða ónæmisglóbúlín sjálfir. Mælingar voru gerðar á blóðsýnum 11 kálfa, strax eftir burð og 24 tímum seinna, og samsvarandi 11 broddsýnum úr mæðrum þeirra með ELISA mælingu. Mælingar sýndu að styrkur ónæmisglóbúlíns G var 8,02 mg/mL í sermi kálfa 24 tímum eftir burð og 11,54 mg/mL í broddi. Þá sýndu mælingar samband á milli IgG styrks í broddi og IgG styrks í blóði við 24 tíma samsvarandi kálfs. Þrátt fyrir að styrkur ónæmisglóbúlíns G sé lægri en hjá öðrum nautgripategundum þá eru íslenskir kálfar heilsuhraustir og að öllum líkindum fá þeir því nóg magn miðað við það umhverfi sem þeir lifa í. Þessar niðurstöður þarf að endurtaka í stærri rannsókn með fleiri sýnum.
Source: Skemman
Author: Rannveig Ósk Jónsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Animal health and immunology
Subfield: Animal Science and Zoology
Domain: Life Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7051667574
