Work

Ofbeldi gegn börnum: Tilkynningar til barnaverndar á árunum 2012-2021

Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Ofbeldi gagnvart börnum er samfélagslegt vandamál þvert á menningarheima. Mikilvægt er að afla þekkingar til að sporna við ofbeldi. Ritgerð þessi fjallar um algengustu tegundir ofbeldis, orsakir, afleiðingar og gerendur. Fjallað verður um skilgreiningar á ofbeldi gagnvart börnum og til stuðnings verður notast við SOF kerfið. Einnig eru skoðuð töluleg gögn frá Barna og fjölskyldustofu frá árunum 2012-2021 með tilliti til kyns um tilkynningar til barnaverndar sem er lykilþáttur í verkefninu. Tilkynningum hefur fjölgað mikið á þessum árum er leitt að líkum að fræðsluátakið Vitundarvakning hafi haft hvetjandi áhrif til að starfsfólk í vinnu með börnum tilkynni þegar það sér merki um ofbeldi en einnig er augljós merki um áhrif Covid faraldar á tilkynningartíðni. Gerendur eru oftast innan fjölskyldna og þá er barnið ekki einungis að glíma við beinar afleiðingar ofbeldisins eins og líkamlegir áverkar heldur missir barnið traust og trúnað og öryggisbrestur verður í lífi þess. Aðkoma fagfólks eins og félagsráðgjafa sem eru talsmenn barns í öllum tilfellum er mikilvæg þar sem barnið á að geta treyst viðkomandi að unnið sé að velferð þess. \nNiðurstöður sýna að hlutfall kynja er sambærilegt á öllum þessum árum en tilkynningum hefur fjölgað verulega. Að efla gott þverfaglegt samstarf á milli allra aðila í samfélaginu sem koma að velferð barna er afar mikilvægt. Barna og fjölskyldustofa gefur kost á mörgum úrræðum þegar um ofbeldi barna er að ræða og er ástæða til að styrkja þau og leggja áherslu á gæði úrræðanna. \nLykilhugtök: Ofbeldi gegn börnum, tilkynningar, úrræði
Source: Skemman
Author: Salome Perla Rúnarsdóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7051787061
Cites: 20
Cited by:
Related to: 10