Raddþjálfun einstaklinga með parkinsonsveiki: Mat á árangri meðferðar
Year: 2012
Type: dissertation
Abstract: Inngangur: Um 70-89% einstaklinga með parkinsonsveiki finna fyrir einkennum í rödd og tali. Helstu einkenni eru að raddstyrkur lækkar, blæbrigði raddar minnka, raddgæðum hrakar og framburður verður óskýrari. \nMarkmið: Að meta hvort raddþjálfun sem einstaklingar með parkinsonsveiki fengu á hópnámskeiði myndi 1) auka raddstyrk í langri röddun, upplestri og sjálfsprottnu tali, 2) auka raddstyrk í sjálfsprottnu tali með tvískiptri athygli, 3) leiða til betra sjálfsmats þátttakenda á rödd og raddvanda og 4) auka tíðnisvið og leiða til betri raddgæða. Einnig að meta hvort raddstyrkur viðhéldist allt að einum mánuði eftir að námskeiði lyki og afla upplýsinga um ástundun heimaæfinga og viðhorf til þeirra. \nAðferð: Einliðasnið var notað og voru þátttakendur tveir. Meðferðin byggðist á Lee Silverman Voice Treatment (LSVT®) en var aðlöguð að hópþjálfun. Hún fór fram tvisvar í viku í átta vikur, 90 mínútur í senn. Alls voru gerðar 11 mælingar á raddstyrk og tíðnisviði fyrir, á meðan, eftir og einum mánuði eftir þjálfun. Þátttakendur fylltu út Voice Handicap Index (VHI) fyrir og eftir þjálfun og upptökur voru gerðar af upplestri þátttakenda fyrir, eftir og einum mánuði eftir þjálfun sem voru notaðar til að meta raddgæði. Þátttakendur svöruðu spurningalista um heimaæfingar strax að námskeiði loknu og einum mánuði eftir að því lauk. \nNiðurstöður: Raddstyrkur jókst í upplestri og sjálfsprottnu tali og þessi aukni raddstyrkur hélst einum mánuði eftir þjálfun. Hjá einum þátttakanda jókst raddstyrkur í sjálfsprottnu tali með tvískiptri athygli og tíðnisvið jókst. Raddgæði eins þátttakanda voru jafnframt metin betri strax eftir þjálfun og einum mánuði eftir þjálfun. Enginn marktækur munur var á sjálfsmati þátttakenda fyrir og eftir þjálfun og viðhorf þeirra til heimaæfinga var almennt jákvætt þó ástundun hafi minnkað eftir að þjálfun lauk. \nÁlyktanir: Raddþjálfun í hópi eins og veitt var hér eykur raddstyrk einstaklinga með parkinsonsveiki í upplestri og sjálfsprottnu tali og sá raddstyrkur viðhelst í allt að einn mánuð. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa einnig vísbendingar um að raddstyrkur í sjálfsprottnu tali með tvískiptri athygli, tíðnisvið og raddgæði geti aukist eftir slíka þjálfun og viðhaldist í allt að einn mánuð. Sjálfsmat bendir til þess að þó þessar breytingar hafi orðið finnist þátttakendum þær ekki hafa áhrif á lífsgæði sín og upplýsingar um heimaæfingar benda til þess að þó viðhorf til þeirra hafi verið jákvætt hafi ekki tekist að gera þær að daglegum þætti í lífi þátttakenda.
Source: Skemman
Author: Hildigunnur Kristinsdóttir 1983
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Neurology
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7052156666
