Work

Rannsókn á áhrifum ólympískra lyftinga á leikmenn í Rugbyfélagi Reykjavíkur

Year: 2016
Type: dissertation
Study design: Clinical Trial
Abstract: Ólympískar lyftingar hafa lengi verið stundaðar til að auka styrk og færni manna við ýmsar athafnir. Þessi rannsókn er gerð með tilraunasniði og vilja rannsakendur varpa ljósi á hvaða áhrif átta vikna þjálfun í ólympískum lyftingum hefur á þyngd, fituhlutfall, liðleika, stökkhæð, styrkaukningu og hlauphraða á tilraunahóp. Þátttakendur eru karlmenn á aldrinum 18 til 45 ára sem stunda rugby með Rugbyfélagi Reykjavíkur. Fyrst fá þeir tveggja vikna kennslu í ólympískum lyftingum án þungaberandi hreyfinga og eftir það tekur við átta vikna þjálfun í ólympískum lyftingum og að lokum er kannað hvaða áhrif eins mánaðar hvíld hefur á niðurstöðurnar. Til að byrja með voru 15 skráðir í tilraunahóp og átta í samanburðarhóp en þegar búið er að taka tillit til mætinga í æfingatíma og í mælingar eru þátttakendur orðnir sjö í rannsóknarhópnum og samanburðarhópurinn orðinn of fámennur til að taka tillit til hans í rannsókninni. Mælingar voru framkvæmdar við upphaf tveggja vikna kennslutímabils; við upphaf og lok átta vikna þjálfunar í ólympískum lyftingum og eftir eins mánaðar hvíld. Niðurstöðurnar eru þær að það er aukning á meðaltali í öllum styrkmælingum og það er marktækur munur á milli mælinga fyrir og eftir átta vikna þjálfun í öllum styrkmælingum fyrir utan snörun. Ef borin er saman tíu vikna þjálfun með tveggja vikan kennslu í upphafi þá verður einnig marktækur munur á fituhlutfalli, snörun, stökkhæð og í tveggja metra viðbragðsprófi. Ekki voru marktækar breytingar á T-prófi né hlauphraða í 20 og 40 metra hlaupi fyrir og eftir átta vikna þjálfun í ólympískum lyftingum.
Source: Skemman
Authors: Lárus Páll Pálsson 1977, Ægir Steinarsson 1989
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7052275307
Cites: 4
Cited by:
Related to: 10