Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Tillaga að nýju svæðisskipulagi fyrir höfuðborgarsvæðið, Höfuðborgarsvæðið 2040, byggir m.a. á markmiðum um hagkvæman vöxt höfuðborgarsvæðisins, skilvirkar samgöngur og nútímalegt samgöngukerfi. Jafnframt eru sett fram viðmið fyrir samgöngumiðuð þróunarsvæði sem byggja á kenningum um samgöngumiðað skipulag. Gundvallaratriði samgöngumiðaðs skipulags eru þéttir og blandaðir byggðakjarnar við öflugan almenningssamgönguás, áhersla á gönguvæna og blandaða byggð í umhverfi sem tekur tillit til mannlegs kvarða og einstaklinga þar sem boðið er upp á raunhæft val um ferðamáta. \nMarkmið verkefnisins er að rannsaka, hvað þarf til þess að styðja við samgöngumiðað skipulag, ávinning af slíku skipulagi og hvort samgöngumiðað skipulag sé raunhæfur valkostur fyrir sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu. Notast var við tilvikarannsókn sem byggir á almennri rýni í hugmyndafræði um samgöngumiðað skipulag, ávinning þess og þróun landnotkunar og samgangna á höfuðborgarsvæðinu. Að lokum er sett fram tillaga að samgöngumiðuðum svæðum fyrir þrjú sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu. \nNiðurstöður rannsóknarinnar sýna að til þess að ná markmiðum samgöngumiðaðs skipulags á höfuðborgarsvæðinu þarf m.a. að koma til skipulagning á samfelldum samgönguás og samvinna ólíkra hagsmunaaðila, þá sérstaklega samvinna sveitarfélaganna. Gerð sérstaks leiðbeiningabæklings gæti auðveldað sveitarfélögunum að tryggja að hugmyndafræðinni yrði fylgt eftir í framkvæmd á öllum stigum skipulagsvinnunnar. Ávinningur af samgöngumiðuðu skipulagi á höfuðborgarsvæðinu yrði verulegur. Má þar helst nefna ábyrgan vöxt höfuðborgarsvæðisins og fjölbreytt val um ferðamáta. Komið yrði til móts við fjölbreyttar þarfir mismunandi samfélagshópa bæði hvað varðar búsetuform og samgöngumáta og m.a. dregið úr samgöngukostnaði heimilanna. Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu standa frammi fyrir raunhæfu vali um breyttar áherslur í skipulags- og samgöngumálum og sýnt er fram á möguleika þriggja þeirra til þess að fylgja eftir leiðarljósum Höfuðborgarsvæðisins 2040. \nLykilorð: Samgöngumiðað skipulag, hágæðakerfi almenningssamgangna, samgönguás, samgöngumiðuð þróunarsvæði, höfuðborgarsvæðið.
Source: Skemman
Author: Jóhanna Helgadóttir 1977-
Institutions: Reykjavík University, University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Transportation
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7052279007
