Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Mótmælin sem efnt var til eftir morðið á George Floyd leiddu til mikillar vitundarvakningar um misrétti og ofbeldi lögreglunnar í garð svarts fólks. Rasismi innan lögreglunnar er ekki nýtt fyrirbæri í Bandaríkjunum og á sér langa sögu. Í þessari ritgerð er fjallað um lögregluna í Suður-Karólínu, rasískar rætur hennar og ummerki þeirra í nútímanum. Starfsemi þrælaeftirlita fortíðarinnar er sett í samhengi við nútíma lögreglu- og fógetaembætti til að varpa ljósi á uppruna hinna síðarnefndu. Í fræðakafla ritgerðarinnar er fjallað um hlutverk lögreglunnar innan ríkja Bandaríkjanna, sögu þeirra og samband við svart fólk. Þar er einnig gerð grein fyrir gagnrýnum kynþáttakenningum og undirstöðum þeirra. Til að hægt sé að skoða rætur lögreglunnar í Suður-Karólínu og ummerki þeirra er fjallað um þrælaeftirlit fortíðar og nútíma lögreglu með áherslu á ofbeldi beggja stofnananna gegn svörtu fólki. Greining lætur í ljós að rætur lögreglunnar í Suður-Karólínu liggja í þrælaeftirlitum sem byggð voru á rasisma. Við endalok þrælaeftirlitanna tók lögreglan upp aðferðir þeirra til ögunar og beitingar ofbeldis á svörtu fólki. Það er meðal annars ástæðan fyrir því að svart fólk verður enn þann dag í dag fyrir misrétti og ofbeldi af höndum lögreglunnar í Suður-Karólínu.
Source: Skemman
Author: Anna María Kjeld
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7052464820
