Work

Sjálfsprottinn, frjáls leikur : „Þau eru bara að leika sér“

Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Börn leika sér og hafa gert í mörg hundruð ár, en hvað það er sem leikurinn gefur þeim er ekki mörgum ljóst. Þeir sem horfa á leik án þess að rýna í hann sjá að í honum býr gleði og finnst jafnframt mörgum leikur vera hin mesta ringulreið. Hins vegar ef leikurinn er skoðaður má sjá margt forvitnilegt, þar sem börn eru að vinna úr sínum upplifunum hvort heldur sem þær eru góðar eða slæmar. Í leiknum gerist mikið, börn eiga í samskiptum, ýmist munnlegum eða táknrænum. Jafnframt eru þau að leitast við að leysa úr vandamálum sem og að komast að samkomulagi. Í ritgerð þessari er leitast við að skilgreina sjálfsprottinn, frjálsan leik barna og hver hans helstu einkenni eru. Ítarleg umfjöllun er um valda fræðimenn sem sett hafa fram kenningar um leikinn og hans áhrif á þroska ungra barna. Valdar voru kenningar sem endurspegla þá þroskaþætti sem valdir voru til umfjöllunar. Ákveðið var að fjalla um þrjá þætti í þroska barna en þeir eru: Vitsmuna-, félags- og málþroski. Jafnframt er leitast við að svara spurningunni: Hvernig hefur sjálfsprottinn, frjáls leikur áhrif á þroskaferil ungra barna? Fléttað er saman umfjöllun um þroskastig barna, frá fyrstu mínútum lífsins upp að sex ára aldri, og leiknum.
Source: Skemman
Author: Vigdís Anna Kolbeinsdóttir 1981
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7052531517
Cites: 17
Cited by:
Related to: 10