Seasonality and rumination : do ruminative tendencies change over the seasons in individuals at risk of seasonal affective disorder?
Year: 2024
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Síðdegisþunglyndi (SAD) flokkast sem tegund af þunglyndisröskun (MDD) með árstíðarbundnu mynstri samkvæmt DSM-5 flokkunarkerfinu. Einkenni röskunarinnar koma oftast fram að vetri til og hverfa með öllu að sumri til. Einstaklingar sem þjást af síðdegisþunglyndi og þunglyndisröskun virðast hafa sambærilega hugræna eiginleika sem gera þá viðkvæmari fyrir síðdegisþunglyndi og þar leikur grufl (e. rumination) lykilhlutverk í framvindu og viðhaldi röskunanna tveggja. Í þessari rannsókn, þar sem úrtakið var 137 einstaklingar, var skoðað hvort einstaklingar sem skora hátt á spurningalistanum „Seasonal Pattern Assessment Questionnaire“, sem metur og skimar fyrir síðdegisþunglyndi (N=68) og eru þar með í hættu á að þróa með sér síðdegisþynglyndi, myndu sýna meira grufl samanborið við einstaklinga sem skora lágt á spurningalistanum (N=69). Þetta var staðfest með fyrirliggjandi rannsókn, með því að nota „Ruminative Response Scale“ spurningalistann sem metur grufl. Listinn inniheldur 10 spurningar sem flokkast í tvo þætti, hugarangur (e. brooding) og íhugun (e. reflection). Mann Whitney U próf var notað fyrir tölfræðilega greiningu milli hópanna tveggja, bæði fyrir heildarskor á RRS listanum (p<.001), hugarangur (p<.001) og íhugun (p<.001). Til að skilja betur hvernig grufl kemur fram hjá einstaklingum sem eru í hættu á að þróa með sér síðdegisþunglyndi var Wilcoxon matched-pairs signed-rank próf keyrt til að bera saman grufl milli árstíða. Samkvæmt niðurstöðum mældist grufl meira um vetur og vor mánuði heldur en sumar og haust mánuði (p=.007). Þessi munur fannst ekki hjá hópnum sem skoraði lágt á SPAQ spurningalistanum. Á grundvelli þessa niðurstaðna er það lagt til að meðferð við síðdegisþunglyndi sé framkvæmd með sérstöku tilliti til grufls og að hún verði veitt á veturna til að vinna gegn grufli eða veita hana að hausti til svo mögulega sé hægt að koma í veg fyrir grufl eða minnka einkenni þess að vetri til. \nLykilhugtök: síðdegisþunglyndi, grufl, hugarangur, íhugun, árstíðir.
Source: Skemman
Author: Marín Rut Bech Ingadóttir
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Experimental and Cognitive Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7052581868
