Sameining opinberra stofnana. Upplifun starfsmanna leikskóla
Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Markmið rannsóknarinnar er að skoða upplifun starfsmanna af sameiningarferli leikskóla á höfðuborgarsvæðinu sem átti sér stað í júlí árið 2011. Gerð var eigindleg rannsókn þar sem tekin voru viðtöl við sjö starfsmenn leikskóla sem ekki voru í stjórnunarstöðu á meðan á sameiningunni stóð. Áhugi rannsakanda á viðfangsefninu kviknaði á þeim tíma þegar hann starfaði sem leikskólakennari í einum af leikskólum borgarinnar eftir efnahagshrunið. Fljótlega fór að bera á umræðu um sameiningu leikskóla í borginni og varð rannsakandi vitni af því mikla óvissutímabili sem gerði vart við sig hjá starfsmönnum leikskóla Reykjavíkurborgar. Rannsakanda langaði því að kanna hvernig hugað er að hinni mannlegu hlið breytinga, þá sér í lagi þegar svona róttækar breytingar eiga sér stað. Einnig því hvernig stjórnendur geta aðstoðað starfsmenn sína í gegnum breytingaferli. Í rannsókninni er leitast við að svara eftirfarandi rannsóknarspurningum: Hver er upplifun starfsmanna af ferli sameiningar sem átti sér stað hjá Leikskólum Reykjavíkur árið 2011? Hvernig upplifðu starfsmenn samskipti og upplýsingar í breytingaferlinu? Tilgangur rannsóknarinnar er að kanna hvaða áhrif sameiningin hafði á starfsmenn leikskólans og hvernig upplýsingaferlinu var háttað og hvort upplýsingar um ferlið hafi skilað sér nægilega vel til starfsmannanna. Til að leita svara við rannsóknarspurningum er litið til ýmissa fræða er snúa að breytingum og stjórnum þeirra. Einnig er litið til fræða er snúa að breytingum hjá opinberum stofnunum en töluvert hefur verið fjallað um muninn á breytingastjórnun hjá opinberum stofnunum í samanburði við hinn almenna markað. Umræðan hefur meðal annars snúist um hvort breytingar hjá opinberum stofnunum geti reynst flóknari í framkvæmd en hjá einkageiranum. \nHelstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að upplýsingagjöf til starfsmanna var verulega ábótavant sem skapaði mikla óánægju í garð breytinganna. Mikil óvissa og óöryggi gerði vart við sig í starfsmannahópnum og töldu viðmælendur almennt að þörf hefði verið á betri upplýsingum til starfsmanna frá borgarráði eða skóla- og frístundasviði borgarinnar. Niðurstöður sýna einnig að starfsmenn sem tóku þátt í rannsókninni hefðu þurft meiri ráðgjöf á tímum sameiningarinnar. Auk þess sýna þær að sameiningin hafði í för með sér aukna starfsmannaveltu sem varð til þess að álag innan leikskólanna jókst töluvert í kjölfarið.
Source: Skemman
Author: Gyða Rós Flosadóttir 1974
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Visual Arts and Performing Arts
Field: Arts and Humanities
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7052596610
