Work

Samfélagsmiðlanotkun og áhrif hennar á sjálfsmat, samanburð og líkamsímynd

Year: 2018
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Samfélagsmiðlanotkun hefur aukist mikið síðustu ár og eru samfélagsmiðlar alltaf að verða stærri partur af daglegu lífi einstaklinga. Rannsóknir hafa sýnt fram á að samfélagsmiðlanotkun er breytileg eftir kyni og aldri ásamt því að hafa sýnt fram á bæði jákvæð og neikvæð áhrif notkunarinnar á ýmsa þætti í lífi einstaklinga. Meginmarkmið þessarar rannsóknar var að kanna hvort marktækur munur mældist á sjálfsmati, tilhneigingu einstaklinga til að bera sig saman við aðra inni á samfélagsmiðlum, hvernig einstaklingar mátu sig í almennum samanburði við aðra inni á samfélagsmiðlum og líkamsímyndar einstaklinga eftir því hversu miklum tíma þeir eyddu inni á samfélagsmiðlum. Ásamt því voru einkenni og eðli notkunarinnar skoðuð og hvort hún væri breytileg eftir kyni, aldri, búsetu, menntun og tekjum. Lögð var fyrir spurningakönnun sem innihélt 35 fjölvalsspurningar samdar af rannsakendum og var hinn staðlaði Rosenberg-sjálfsmatskvarði notaður til þess að mæla sjálfsmat. Heildarfjöldi þátttakenda var 765 og voru konur 82,7% og karlar 17,3% þátttakanda. Rúmlega helmingur þátttakenda var 30 ára og yngri (56,5%). Tilgátur þessarar rannsóknar eru að þeir einstaklingar sem eyða meiri tíma inni á samfélagsmiðlum (1) mælast með lægra sjálfsmat, (2) bera sig meira saman við aðra inni á samfélagsmiðlum, (3) meta sig verr setta í almennum samanburði við aðra inni á samfélagsmiðlum og (4) hafa lélegri líkamsímynd en þeir sem eyða minni tíma inni á samfélagsmiðlum. Tilgáturnar voru prófaðar með einhliða dreifigreiningu. Meginniðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að þátttakendur sem eyddu meiri tíma inni á samfélagsmiðlum voru með marktækt lægra sjálfsmat, mátu sig verr setta í almennum samanburði við aðra inni á samfélagsmiðlum og höfðu lélegri líkamsímynd en þeir sem eyddu minni tíma inni á samfélagsmiðlum (p < 0,05). Marktækur munur mældist á milli samfélagsmiðlanotkunar og tilhneigingu einstaklinga til að bera sig saman við aðra inni á samfélagsmiðlum þegar tekið var tillit til sjálfsmats í því sambandi (p < 0,05). Niðurstöður eru í samræmi við fyrri rannsóknir. Af niðurstöðum þessarar rannsóknar má draga þá ályktun að þeir sem eyða meiri tíma á dag inni á samfélagsmiðlum hafi mögulega lægra sjálfsmat, meti sig frekar verr setta í almennum samanburði, bera sig frekar saman við aðra (þegar tekið er tillit til sjálfsmats einstaklinga), ásamt því að hafa lélegri líkamsímynd, en þeir einstaklingar sem eyða minni tíma inni á samfélagsmiðlum. Lykilhugtök: samfélagsmiðlar, sjálfsmat, líkamsímynd, samanburður
Source: Skemman
Authors: Katrín Vilhjálmsdóttir 1993, Sara Mjöll Magnúsdóttir 1992
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7052603358
Cites: 40
Cited by:
Related to: 10