Work

Svefn á tímum Covid-19 : áhrif Covid-19 á svefn háskólanema

Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Bakgrunnur: Háskólanemar eru í umhverfi sem getur aukið líkur á minni svefn og eru þónokkur atriði sem geta komið í veg fyrir að þessi hópur sofi nóg. Samkomutakmarkanir á tímum heimsfaraldursins Covid-19 hefur haft áhrif á samfélög um allan heim og er mögulega einn þeirra þátta, þar sem mikið var um breytingar á daglegu lífi háskólanema. \nMarkmið: Markmið rannsóknarinnar var að skoða svefnvenjur háskólanema á tímum Covid-19 með huglægum og hlutlægum mælingum og bera þær saman við rannsóknir á svefnvenjum háskólanema fyrir tíma heimsfaraldursins Covid-19. \nAðferðir: Rannsóknin var þversniðsrannsókn þar sem 256 háskólanemum af fyrsta ári var boðin þátttakan og voru 76 sem áttu gild gögn til frekari greininga. Gögnum var aflað með spurningalista og hreyfimælum (Actigraphy GT3X+) sem voru bornir í viku. Þá var notast við grunnupplýsingar og svefnbreytur sem snérust að svefnlengd, tímasetningu svefns og svefngæðum. Rannsóknin var gerð á meðan á samkomutakmörkunum stóð á Íslandi og voru nemendur meira og minna að sinna námi í fjarnámi. \nNiðurstöður: Háttatími háskólanema alla daga vikunnar var klukkan 01:41 að meðaltali, þá voru karlar að fara seinna að sofa en konur og seinna á fætur. Marktækur munur var á svefnlengd karla og kvenna fyrir alla daga vikunnar þar sem karlar sváfu að meðaltali 7 klukkustundir og 10 mínútur meðan konur sváfu að meðaltali 7 klukkustundir og 37 mínútur (p=0,034). Ekki var munur á breytum fyrir svefngæði milli kynja en tæplega helmingur þátttakenda töldu svefngæði sín verri samanborið við fyrir tíma Covid-19. \nÁlyktun: Samfélagslegar breytingar á tímum Covid-19 hafði áhrif á allan heiminn með komu sinni og þó ekki sé hægt að segja með vissu er líklegt að samkomutakmarkanir á tímum Covid-19 hafi haft áhrif á svefnhegðun háskólanema.
Source: Skemman
Author: Alda Ólína Arnarsdóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7052648036
Cites: 125
Cited by:
Related to: 10