Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Í þessari rannsókn eru upplýsingafundir Almannavarna til umfjöllunar út frá sjónarhóli rannsókna og kenninga í félagslegri sálfræði. Upplýsingafundir Almannavarna voru reglulegir fundir sem haldnir voru í Covid-19 faraldrinum á Íslandi. Notast var við eigindlega aðferð þar sem upplýsingafundirnir voru greindir og viðtal var tekið við Víði Reynisson, yfirlögregluþjón Almannavarna. Niðurstöður sýndu að traust, félagsmyndun og félagsleg viðmið voru veigamikil þegar kom að upplýsingagjöf íslenskra stjórnvalda. Mikil áhersla var lögð á samstöðu og reynt var að búa til einn hóp sem barðist gegn Covid-19. Þá voru upplýsingafundirnir skoðaðir sem stjórntæki hins opinbera. Einkenni þeirra og áhrif rímuðu vel við opinberar upplýsingar sem stjórntæki, bæði virkni og skilvirkni voru góð en jafnræði þess var miðlungs þar sem ekki tókst nógu vel að ná til allra hópa í íslensku samfélagi. Lögmæti upplýsingafundanna sem stjórntæki var mjög gott þar sem almenningur var ánægður með fundina og treysti á upplýsingarnar sem þar komu fram. Stjórnmálamenn mættu reglulega á fundina og juku þannig lögmæti þeirra.
Source: Skemman
Author: Gunnar Már Þórarinsson
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Communication
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7052678366
