Skólaþjónusta sveitarfélaga við nemendur og foreldra : Stefna, skipulag og inntak
Year: 2022
Type: article
Abstract: Í þessari grein er sjónum beint að þeim þætti í skólaþjónustu sveitarfélaga sem skilgreindur er í reglugerð um þjónustuna (nr. 444/2019) sem stuðningur við nemendur í leik- og grunnskólum og foreldra þeirra. Leitast er við að svara því hvað einkenni stefnu sveitarfélaga um þennan þátt skólaþjónustu, skipulag hans og inntak, og hversu líklegt sé að það stuðli að menntun fyrir alla. Niðurstöður greinarinnar eru hluti stærri rannsóknar á skólaþjónustu sveitarfélaga. Þær eru byggðar á spurningakönnun til skólastjóra leik- og grunnskóla og forsvarsaðila skólaþjónustu, viðtölum við forsvarsaðila skólaþjónustu í fimm tilvikum og greiningu á stefnuskjölum á vefjum sveitarfélaganna. Meginniðurstöðurnar eru eftirfarandi: 1) að stefna og starfshættir skólaþjónustu einkennist af áherslu á greiningu frávika sem skilgreind eru sem vandi nemenda, 2) að auka þurfi skilvirkni ráðgjafar í kjölfar greininga og efla sameiginlegan skilning á eðli og inntaki hennar, 3) að efla þurfi stuðning skólaþjónustu við að takast á við áskoranir varðandi menntun fyrir alla og 4) að þörf sé á virkari samhæfingu þjónustukerfa utan skólans. Niðurstöðurnar beina athygli að menntun fyrir alla og jafnræði til náms á landsvísu og þær munu nýtast sveitarfélögum til að styrkja þjónustu við einstaka nemendur og kennara og til að efla skóla sem faglegar stofnanir.
Source: Opin vísindi (Opin vísindi)
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7052742673
