Work

Stelpur og strákar með ADHD: Rannsóknaryfirlit erfða- og umhverfislegra áhrifa á kynjamun barna með athyglisbrest og ofvirkni

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Athyglisbrestur með eða án ofvirkni er margslungin og flókin geðröskun og sýna strákar og stelpur með ADHD ólík einkenni frábrugðið hvort öðru. Tilgangur þessarar rannsóknar er að greina hver áhrif umhverfisins er á þróun röskunarinnar og skoða hvort kynjamunurinn sé tilkominn vegna umhverfisáhrifa eða annarra þátta. Notast verður við rannsóknir síðustu 40 ára til þess að greina þessa þætti. Farið verður yfir almenna þætti röskunarinnar; svo sem einkenni, birtingarmynd, líffræðilega þætti og svo farið í greiningu rannsókna. Mikilvægt er að taka almenna þætti röskunarinnar með þar sem einkenni hennar geta komið fram með ólíkum hætti og spila þeir allir saman að mótun röskunarinnar. Niðurstöðurnar sýndu að strákar eru viðkvæmari gagnvart röskuninni bæði frá áhrifum erfða og umhverfis, á meðan stelpur eru með erfðafræðilega vörn gagnvart henni. Þó dreifa stelpur röskuninni meira erfðafræðilega séð en strákar þar sem líklegra er að nýir fjölskyldumeðlimir fæðast með ADHD ef það er kona í fjölskyldunni með röskunina. Kynjaskekkjan er þar með komin vegna margra þátta, en umhverfið ýtir undir þá með kröfum samfélagsins og kynhlutverkum kynjanna. Stúlkur með ADHD eru líklegri til þess að fela einkenni sín til þess að falla inn í viðmið samfélagsins á meðan strákar fá meira rými til þess að vera þeir sjálfir. Umhverfið getur þar að auki verið eini orsakaþáttur þess að ADHD myndist hjá einstaklingum.
Source: Skemman
Author: Anna Lilja Atladóttir
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7052856356
Cites: 45
Cited by:
Related to: 10