Work

Staða og kjör einstæðra mæðra í háskólanámi eftir efnahagshrunið árið 2008

Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Markmiðið með þessari eigindlegu rannsókn er að fá innsýn í líf einstæðra mæðra í námi við Háskóla Íslands árið 2014 og upplifun þeirra af því að samræma nám og einkalíf. Í því augnamiði voru tekin hálfstöðluð viðtöl við átta slíkar mæður sem búa með barni/börnunum sínum. Rannsóknarspurningunum var ætlað að draga fram reynslu þeirra og upplifun af þeim stuðningi sem þeim stendur til boða á meðan á námi stendur og fá fram viðhorf þeirra til þess hvort bankahrunið hafi haft áhrif á lífsgæði þeirra. \nNiðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að flestar einstæðar mæður í þessum sporum njóti góðs formlegs og óformlegs stuðnings, þ.e. séu með gott stuðningsnet að baki sér. Þær eru í góðum samskiptum og tengslum við fjölskyldu sína, vini og venslamenn sem styðja þær bæði á ánægjustundum í lífinu og ekki síður þegar eitthvað bjátar á. Flestar mæðurnar hafa nýtt sér þann stuðning sem ríkið og sveitarfélagið hefur upp á að bjóða. Jafnframt hafa flestallar þeirra verið með framfærslulán hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Í rannsókninni voru viðmælendur kallaðir meðrannsakendur. Afstaða meðrannsakenda til efnahagshrunsins var neikvæð. Þeir töldu sig þó ekki hafa fundið fyrir miklum breytingum eftir hrun, þó svo að þeir tækju eftir breytingum á verði matvöru og eldsneytis, svo dæmi séu tekin. Allar mæðurnar voru bjartsýnar á framtíðina og töldu að breytingar yrðu til batnaðar í lífi þeirra þegar náminu lyki. \nHægt er að nýta niðurstöðurnar við áframhaldandi rannsóknir á aðstæðum einstæðra foreldra í háskólanámi og fara skrefinu lengra með því að opna fyrir frekari umræður um málefni einforeldra í námi.
Source: Skemman
Author: Ragnar Þór Risten Friðjónsson 1985
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7052861066
Cites: 33
Cited by:
Related to: 10