Year: 2013
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Á undanförnum áratugum hefur orðið mikil vitundarvakning um mikilvægi heilbrigðra lífshátta. Samhliða henni hefur aðsókn Íslendinga í heilsurækt aukist jafnt og þétt. Með reglulegri hreyfingu og hollu mataræði er hægt að koma í veg fyrir marga lífstílstengda sjúkdóma, en ljóst er að víða leynast svartir sauðir sem virða að vettugi allar slíkar ráðleggingar. \nMarkmið þessa meistaraverkefnis er að skoða tengsl stjórnrótar við aðsókn Íslendinga í heilsuræktarstöðvar. Gerð var megindleg rannsókn á vorönn árið 2013. Þátttakendur rannsóknarinnar voru 272, þar af 217 konur og 55 karlar. Til aukins skilnings voru ýmsar fræðigreinar hafðar til hliðsjónar. \nTil að svara rannsóknarspurningu höfundar var sett fram sú tilgáta að jákvæð tengsl væru á milli innri stjórnrótar og aðsóknar í heilsurækt, svo og að lýðfræðilegir þættir kynnu að hafa sitt að segja. Aðrar tilgátur sneru að tengslum sjálfstrausts, hvatningar, tíma og staðsetningar heilsuræktarstöðva við aðsókn Íslendinga í heilsurækt. \nNiðurstöður rannsóknarinnar styðja við flestar tilgátur höfundar. Þátttakendur rannsóknarinnar virðast hafa meiri innri stjórnrót en ytri þar sem áður nefndir þættir sem taldir eru stuðla að aukinni líkamsrækt, virðast hvorki skipta þá miklu máli né hafa áhrif á ákvarðanir þeirra. Niðurstöðurnar benda einnig til þess að lýðfræðilegir þættir hafi áhrif á aðsóknina þar sem ólíkar niðurstöður fengust eftir kyni, aldri og hjúskaparstöðu.
Source: Skemman
Author: Sigrún Anna Waage Knútsdóttir 1987
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Health and Lifestyle Studies
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7052873713
