Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Aukning í framleiðni er ráðandi þáttur í aukinni velferð og viðvarandi hagvexti. Framleiðnivöxtur vinnuafls hefur farið minnkandi víða um heim síðastliðna áratugi og hefur það valdið áhyggjum. \n \nÍ ritgerð þessari er kannaður og borinn saman framleiðnivöxtur Íslands, Noregs, Svíþjóðar, Finnlands, Frakklands, Þýskalands og ríkja Evrópusambandsins í heild á árunum 1997-2022. Stuðst er við gögn af vef Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Framleiðnivöxtur er sundurgreindur í þrjú áhrif: Hrein framleiðniáhrif, sem fanga áhrif aukinnar framleiðni vinnuafls innan atvinnugreina, Baumol áhrif, sem fanga breytingu á samsetningu atvinnugreina með mimsunandi framleiðnivöxt og Denison áhrif, sem fanga breytingu á samsetningu atvinnugreina með mismunandi framleiðnistig. \n \nHelstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að framleiðni vinnuafls óx mest á Íslandi á tímabilinu og þar eftir í Svíþjóð. Á Íslandi drógu þó samsetningaráhrifin úr framleiðnivexti, þá sérstaklega á árunum 2011-2016. \nÍ öllum löndum sem voru til skoðunar voru hrein framleiðniáhrif helsti drifkraftur framleiðniaukningar, Baumol áhrifin neikvæð og Denison áhrifin jákvæð. Samsetningaráhrifin (Baumol- og Denison áhrif) spila þó almennt ekki stórt hlutverk í þróun framleiðnivaxtar, nema í Noregi. Í Noregi eru bæði samsetningaráhrifin sterkari en hrein framleiðniáhrif.
Source: Skemman
Author: Arnar Gylfason
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Economics and Econometrics
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7052896454
