Work

Tengsl streitu foreldra og óreiðu á heimilum við einkenni ADHD og hegðunarvanda hjá börnum á leikskólaaldri

Year: 2019
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Streita í tengslum við foreldrahlutverkið er talin eðlileg upp að vissu marki en rannsóknir hafa sýnt að foreldrar barna með ADHD og hegðunarvanda virðast finna fyrir meiri streitu en aðrir. Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða streitu hjá foreldrum íslenskra leikskólabarna og athuga tengsl streitu við einkenni ADHD og hegðunarvanda hjá börnunum. Að auki var óreiða á heimilum mæld og tengsl allra breytanna könnuð. Þátttakendur voru 819 foreldrar sem áttu börn í tveimur elstu árgöngum leikskóla á Íslandi. Þeir spurningalistar sem notaðir voru við rannsóknina voru The Strengths and Difficulties Questionnaire (SDQ), The Depression Anxiety Stress Scales (DASS) og The Confusion, Hubbub and Order Scale (CHAOS). Þrjár tilgátur voru settar fram: 1) Að streita foreldra hefði tengsl við einkenni hegðunarvanda og ADHD hjá börnunum. Tilgátan var studd en tengslin voru veikari en í fyrri rannsóknum. 2) Að óreiða á heimili hefði tengsl við einkenni hegðunarvanda og ADHD hjá börnunum. Sú tilgáta var jafnframt studd en tengslin voru sömuleiðis veik. 3) Að hægt væri að skýra streitu foreldra með óreiðu, einkennum hegðunarvanda og einkennum ADHD. Sú tilgáta var studd að hluta til þar sem líkan á tengslunum sýndi að óreiða hefur greinileg áhrif á streitu en áhrif hinna breytanna voru óljós. Niðurstöðurnar gefa vísbendingar um að lykillinn að því að minnka streitu foreldra sé að minnka óreiðu á heimilum og að samfara því gæti erfið hegðun barnanna mögulega minnkað.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7052921607
Cites: 89
Cited by:
Related to: 10