Work

Styrkmæling einstaklinga með hásinamein: Gerð spájöfnu sem áætlar hámarksstyrk kálfavöðva út frá undirhámarksþyngdum

Year: 2024
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Inngangur: Stoðkerfisvandamál eru mjög algeng í nútíma samfélagi og er hásinamein á meðal þeirra. Það er vel vitað að hásinamein er hægt að meðhöndla með styrktarþjálfun og þar eru ýmsar aðferðir sem virka vel. Að nota hlutfall af hámarksþyngd er algeng og árangursrík aðferð til þess að styrkja og endurhæfa sinar og vöðva. Það sem getur reynst vandasamt við hásinamein er að ákvarða raunverulega hámarksþyngd þar sem einstaklingar geta átt erfitt með að framkalla hámarkskraft sökum verkja. \nMarkmið: Meginmarkmið rannsóknarinnar var að finna hvaða breytur sýndu fram á besta spágildi fyrir hámarkslyftu í hællyftu á öðrum fæti hjá einkennalausum einstaklingum. \nRannsóknarsnið: Lýsandi þversniðsrannsókn (e. descriptive cross-sectional study). \nAðferðir: Við upphaf rannsóknar mættu 25 þátttakendur í mælingar. Þátttakendur framkvæmdu hællyftur á öðrum fæti með tóma stöng í Exigo Smith-vél. Hæsta hællyfta sem þátttakandi framkvæmdi með tóma stöng var notuð sem viðmiðunarhæð fyrir gilda lyftu. Hámarkshællyftur á öðrum fæti voru framkvæmdar þar til þátttakendur náðu ekki yfir 90% af hæð viðmiðunarlyftu. Hámarksendurtekningar með 60-90% af hámarkshællyftu voru svo framkvæmdar til skiptis á hægra og vinstra fæti. Línuleg aðhvarfsgreining var notuð til þess að útbúa spájöfnu (Jafna fyrir Hámarks Einfætta Hællyftu (JHEH)), og kross sannprófun (e. cross validation) framkvæmd til þess að forðast ofpössun (e. overfitting). Einnig voru pöruð t-próf notuð til þess að bera saman meðaltöl mismunandi spájafna og raunverulegra hámarkslyfta (1RM). \nNiðurstöður: Niðurstöður sýndu að skýribreyturnar endurtekningar og eigin líkamsþyngd+þyngd lyft og háða breytan hámarksþyngd lyft+eigin líkamsþyngd (R2 0.988) gátu best spáð fyrir um hámarkslyftu þátttakenda. Niðurstöður paraðra t-prófa sýndu marktækan mun á meðaltölum Brzycki (p<0.001), Epley (0.001) og Lombardi (p<0.001) samanborið við meðaltal hámarkslyftna þátttakenda. Niðurstöður paraðra t-prófa sýndu ekki marktækan mun á JHEH (p=0.838) og kross sannprófun á JHEH (p=0.915) samanborið við hámarkslyftur þátttakenda. JHEH: \nhámarkslyfta+líkamsþyngd =(líkamsþyngd+mótstaða*1.0177)+(fjöldi endurtekninga*1.88). \nÁlyktun: Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að spájafnan JHEH gæti nýst sjúkra-, styrktarþjálfurum og heilbrigðisstarfsmönnum við gerð endurhæfingaáætlana sem byggja á hámarkslyftu hjá einstaklingum með hásinamein.
Source: Skemman
Author: Dagur Mar Sigurðsson
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7052971340
Cites: 58
Cited by:
Related to: 10