Work

Tilfinningalistinn RCADS: Söfnun viðmiða

Year: 2014
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Geðraskanir hafa áhrif á ýmsa færni einstaklinga á öllum aldri. Kvíða- og lyndisraskanir og samsláttur milli þeirra eru til að mynda algengar hjá börnum og unglingum. Kvíðaraskanir skiptast niður í nokkra undirflokka og bregða þær frá eðlilegum kvíða og ótta. Auk þess geta þær verið langvarandi og haft skerðandi áhrif á daglega virkni. Lyndisraskanir skiptast einnig niður í nokkra undirflokka sem flestir hafa sameiginleg einkenni. Þar má nefna leiða, áhugaleysi og pirring, ásamt líkamlegum og hugrænum breytingum. Það sem er breytilegt milli þessara raskana er lengd einkenna, tímasetning þeirra og möguleg orsakafræði. Árið 2000 var hannaður spurningalisti sem kallast RCADS (Revised Child Anxiety and Depression Scales). RCADS er sjálfsmatsspurningalisti sem metur kvíða og þunglyndi hjá börnum og unglingum, á aldrinum 8-18 ára. Tilgangur rannsóknarinnar hér er að safna viðmiðum fyrir notkun íslenskrar þýðingar RCADS. Þátttakendur voru 109 börn á aldrinum 8-17 ára, valin af handahófi úr þjóðskrá af öllu landinu. Rannsóknin var framkvæmd með því að senda 750 spurningalista með pósti á heimili þátttakenda. Í þetta sinn var notast við stytta útgáfu listans, eða 30 atriði. Niðurstöður rannsóknarinnar voru í ágætu samræmi við fyrri rannsóknir sem gerðar hafa verið á RCADS. Þrátt fyrir það var erfitt að túlka niðurstöður þar sem úrtakið var langt því frá nægilega stórt. Rannsakendur fundu kynjamun í lyndis- og kvíðaröskunum og voru það stúlkur sem skoruðu hærra á heildarkvarða en drengir. Helsti ókostur rannsóknarinnar er stærð úrtaksins og hafði það áhrif á niðurstöðurnar sem hér fengust. Helstu kostir rannsóknarinnar er dreifing úrtaksins þar sem notast var við úrtak af handahófi úr þjóðskrá. Rannsakendur eru bjartsýnir á framtíð íslenskrar þýðingar á RCADS. Mögulegt er að tímaskortur hafi háð úrvinnslu gagna en einnig er möguleiki á að notast þurfi við aðrar leiðir til söfnunar á viðmiðum fyrir listann.
Source: Skemman
Authors: Hulda Magnúsdóttir 1989, Íris Benediktsdóttir 1989
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7053004983
Cites: 46
Cited by:
Related to: 10