Tengsl einkenna áfallastreituröskunar og frávika í heilastarfsemi. Með áherslu á möndlu, dreka og framheilabörk
Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Áfall getur haft í för með sér verulega skerðingu á hugræna færni og almenna andlega heilsu. Meðal alvarlegri afleiðinga áfalla er áfallastreituröskun sem er langvarandi streituviðbragð sem hjaðnar ekki þó svo áfallið sé yfirstaðið. Talið er að einkenni áfallastreituröskunar stafi af frávikum í heilastarfsemi í kjölfar áfallastreitu sem orsaka sértækar truflanir í hegðun. Á síðustu áratugum hafa framfarir í myndgreiningarannsóknum aukið skilning okkar á þeim lífeðlislegu frávikum sem verða í kjölfar áfalls. Markmið þessarar ritgerðar var að gera fræðilega samantekt á frávikum í heilastarfsemi hjá einstaklingum með áfallastreituröskun. Samkvæmt niðurstöðum nýlegra rannsókna er hægt að álykta um frávik í möndlu, dreka og framheilaberki. Þessi heilasvæði sjá um óttaviðbrögð og óttanám, tilfinningastjórnun og stýrifærni, og samhengisháða úrvinnslu. Mikilvægt er að framkvæma frekari myndgreiningarannsóknir á breiðari grunni til þess að varpa frekari ljósi á tengsl einkenna áfallastreituröskunar og frávika í heilastarfsemi. Yfirgripsmiklar rannsóknir eru mikilvægar til þess að dýpka stöðu þekkingar í dag og þar af leiðandi bæta meðferðarúrræði og batahorfur einstaklinga með áfallastreituröskun.
Source: Skemman
Author: Björk Steinunn Barðdal 1997-
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Child Abuse and Trauma
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7053076556
