Work

Undir regnboganum : fyrstu skref trans barns í nýju kynhlutverki innan grunnskóla

Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Markmið þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á reynslu foreldris og skólasamfélags af því að styðja barn í gegnum það ferli að lifa samkvæmt öðru kynhlutverki en því var úthlutað við fæðingu. \nRannsóknin er eigindleg og er í senn tilfellarannsókn og starfendarannsókn. Fylgst var með upphafi skólagöngu hjá trans barni í íslenskum grunnskóla og rýnt í hvaða áhrif það hafði á skólavettvanginn og rannsakanda sem umsjónarkennara. Sömuleiðis var skoðuð reynsla foreldris af því að leiða barnið sitt fyrstu skrefin í því að lifa í nýju kynhlutverki. Til að greina þær breytingar sem áttu sér stað í skólanum var hlutverk skólans skoðað út frá starfsemiskenningum Engeströms. Tekin voru hálfstöðluð viðtöl við foreldri barnsins sem tók þátt í rannsókninni og barnið sjálft. Til að varpa frekara ljósi á hlutverk skólans var einnig tekið viðtal við ungan trans mann sem er útskrifaður úr skólanum. \nHelstu niðurstöður voru þær að foreldrar barnsins höfðu stutt það frá upphafi í því ferli að lifa samkvæmt öðru kyni en því var úthlutað við fæðingu. Fjölskyldan var opinská um reynslu sína í upphafi skólagöngunnar og hvatti skólann til að fræða bæði nemendur og starfsfólk. Þrátt fyrir að málefni trans fólks væru flestum í skólanum framandi varð umræða um málefni hinsegin barna meira áberandi í skólastarfinu á rannsóknartímabilinu. Gera má ráð fyrir að sú umræða þróist enn frekar á vettvangi skólans.
Source: Skemman
Author: Rakel Guðmundsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Gender Studies
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7053228714
Cites: 38
Cited by:
Related to: 10