Tæknin sem varð gluggi inn í fortíðina: Hvernig erfðarannsóknir breyttu skilning okkar á sögu Homo sapiens
Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Saga og þróun Homo sapiens hefur lengi verið áhugaefni margra sviða innan vísindaheimsins, af þeim öllum hefur steingervinga- og fornmannfræðingar eflaust lagt mest að mörkum við að púsla saman þeim vísbendingum sem fundist hafa eftir ferðir nútímamannsins um víða veröld. Hins vegar hefur reynst erfitt að álykta hreyfingu hópa einungis með minjum og leifum. Margar kenningar hafa verið settar fram til að skýra ferðir Homo sapiens eða nútímamannsins og tengsl hans við aðrar fornar manntegundir. Tilkoma nýrra aðferða til að lesa erfðamengi núlifandi og löngu dauðra einstaklinga og notkun hennar í rannsóknum hefur verið talin bylting sem hefur breytt skilningi okkar þar um. Nýja tæknin býður upp á skilvirka og afkastamikla raðgreiningu á heilum erfðamengjum manna. Þar að auki er hún ódýrari en aðferðir sem áður var notast við og því aðgengileg flestum fræðimönnum um allan heim. Með nýju raðgreiningartækninni varð hægt að bera saman heil erfðamengi úr fornum og nútíma einstaklingum og skoða breytileikann þar á milli. Tiltekna breytileika er síðan hægt að rekja til ákveðinna hópa og þannig greina hvar uppruni einstaklinga liggur. Þessi ritgerð sýnir hvernig rannsóknir sem nýttu þessa tækni til þess að raðgreina fornt DNA hafa náð að mála skýrari mynd af uppruna nútímamannsins og samskipti hans við fyrri forn manntegundir.
Source: Skemman
Author: Steinunn Perla Daníelsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Genetics
Domain: Life Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7053248082
