Work

Vellíðan í vinnu. Líðan fagfólks í fæðingaþjónustu á Kvennadeild Landspítalans

Year: 2015
Type: dissertation
Abstract: Landspítali Háskólasjúkrahús og málefni hans hafa verið áberandi í þjóðfélagsumræðunni á síðustu misserum. Engum dylst að staða þessa flaggskips íslenskrar heilbrigðisþjónustu er alvarleg, bæði með tilliti til húsakosts en ekki síður vegna þeirrar þróunar sem orðið hefur í starfsmannamálum á árunum eftir efnahagshrunið. Læknar og ljósmæður hafa í auknum mæli haldið út fyrir landsteinana í leit að betri kjörum og starfsaðstöðu. Tilgangur þessarar eigindlegu rannsóknar er að varpa ljósi á líðan fagfólks í fæðingaþjónustu á Landspítalanum og hvaða sálfélagslegu þættir hafa þar mest áhrif. Tekin voru rýnihópaviðtöl við 22 lækna og ljósmæður á Fæðingarvakt og Meðgöngu- og sængurlegudeild sem voru í fastri vinnu vorið 2014 og í sextíu prósent eða meira starfshlutfalli. Notast var við spurningaramma með fimm opnum spurningum en hann er byggður á spurningalista um starfsálag, sjálfstæði í starfi og stuðning á vinnustað, DSCQ eftir Karasek, Theorell og Johnson (1997/2009). Rannsóknin leiddi í ljós að langvarandi undirmönnun kemur fram í miklu vinnuálagi og streitu og að bæta megi vinnuskipulagið til að draga úr þeirri streitu. Læknar og ljósmæður í fæðingaþjónustu á Landspítalanum telja sig hafa nokkuð mikið sjálfræði þrátt fyrir að verklagsreglur móti starfsemina að miklu leyti. Fagfólkið lýsti miklum stuðningi af samstarfsfólki sínu þegar erfiðar aðstæður koma upp en töldu nokkuð vanta upp á formlegan stuðning yfirmanna og stofnunar. Virðing, traust og gott samstarf var læknum og ljósmæðrum ofarlega í huga en þó greina mætti einkenni kulnunar hjá mörgum þeirra var stolt og hollusta við Kvennadeildina jafnframt áberandi. Niðurstöður gefa til kynna að fagfólki í fæðingaþjónustu líði almennt þokkalega í vinnu. Ýmislegt má þó betur fara varðandi vinnuskipulag, sjálfræði og stuðning. Helsti styrkur vinnustaðarins liggur að mati þátttakenda í gagnkvæmu trausti og góðri samvinnu milli fagfólks. \n \nLykilorð: Vinnutengd vellíðan, sálfélagslegir þættir, starfskröfur, sjálfræði, félagslegur stuðningur.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7053375042
Cites: 64
Cited by:
Related to: 10