Útikennsla í náttúrufræðigreinum : viðhorf og upplifun unglinga
Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Útikennsla hefur farið vaxandi sem kennsluaðferð á síðastliðnum árum og hafa rannsóknir á henni aukist samhliða því. Rannsóknir sýna meðal annars fram á að útikennsla stuðli að bættum námsárangri og ýti undir vellíðan nemenda. Hér á landi hafa rannsóknir á útikennslu miðast við yngri stig grunnskóla sem og leikskóla. Meginmarkmið rannsóknarinnar var að gera grein fyrir viðhorfum og upplifun unglinga í Kópavogi til útikennslu í náttúrufræðigreinum. Rýnt var í reynslu og skilning nemenda á unglingastigi á útikennslu. Rannsóknin var gerð með eigindlegum hætti þar sem tekin voru tólf rýnihópaviðtöl við nemendur á unglingastigi í fjórum mismunandi skólum í Kópavogi. Í hverjum rýnihópi voru fjórir nemendur og byggja því niðurstöður rannsóknarinnar á skoðunum 48 nemenda á útikennslu. \nHelstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að skilningur nemanda á útikennslu miðast við upplifun þeirra af útikennslu á yngri stigum grunnskólans. Nemendurnir höfðu ekki mikla reynslu af útikennslu á unglingastigi, hvorki í náttúrufræðigreinum né öðrum námsgreinum. Söfn og umhverfi skólans voru þau svæði sem nefnd voru þegar nemendurnir tilgreindu hvar útikennslan færi fram og er skólalóðin afar sjaldan nýtt sem vettvangur útikennslunnar. Þá voru markmið og tilgangur útikennslunnar sjaldnast greinileg og endurgjöf til nemenda engin. Viðhorf nemendanna til útikennslunnar var jákvætt og töldu þeir að helstu kostir hennar væru að vera úti, sjá og upplifa. Að mati nemendanna eykur útikennsla skilning þeirra á námsefninu og telja þeir einnig slíka kennslu reyna meira á hugsun þeirra. Þá nefndu nemendurnir það sem kost við útikennsluna að fá frí frá námsbókunum. Að mati nemendanna voru helstu ókostir útikennslunnar tengdir slæmu veðurfari og skorti á fyrirmælum. Nemendur upplifðu að þeir sáu ekki alltaf tilganginn með kennslunni eða hvaða væntingar væru gerðar til þeirra í útikennslu. Niðurstöðurnar benda til þess að nemendur vilja fara oftar í útikennslu í námi sínu með því skilyrði að skýr markmið séu til staðar. Niðurstöður rannsóknarinnar benda einnig til þess að nemendur á unglingastigi hafi einhver áhrif á hvernig þeir læra en ekki á hvað þeir læra.
Source: Skemman
Author: Ósk Kristinsdóttir 1988
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7053376283
