Work

Viðvera aðstandenda í endurlífgun á bráðamóttöku: Viðhorf hjúkrunarfræðinga

Year: 2021
Type: dissertation
Study design: Systematic Review
Abstract: Bakgrunnur: Líðan aðstandenda í og eftir viðveru þeirra í endurlífgun hefur mikið verið rannsökuð. Niðurstöður rannsókna sýna að það geti haft góð áhrif á þá að fá að vera viðstaddir þegar ástvinur þeirra er endurlífgaður. Það getur hjálpað þeim að vinna betur úr sorginni og samkvæmt rannsóknum sýna þeir minni einkenni kvíða og þunglyndis samanborið við þá sem fá ekki að vera viðstaddir. Þrátt fyrir þessa vitneskju virðist sem hjúkrunarfræðingar séu ekki allir sannfærðir um ávinning þess og stendur aðstandendum ekki alltaf til boða að vera viðstaddir endurlífgun ástvina sinna. \nTilgangur: Kanna viðhorf hjúkrunarfræðinga gagnvart viðveru aðstandenda í endurlífgun og hverjar helstu hindranir séu í starfi þeirra sem koma í veg fyrir að aðstandendum standi til boða að vera viðstaddir endurlífgun ástvina sinna. Einnig var skoðað hvort nauðsynlegt sé að þróa verkferil um viðveru aðstandenda í endurlífgun fyrir heilbrigðisstarfsfólk til að styðjast við. \nAðferð: Fræðileg samantekt á eigindlegum og megindlegum greinum frá 2011-2021 þar sem framkvæmd var kerfisbundin leit í gagnagrunninum PubMed. Stuðst var við ákveðin inntöku- og útilokunarskilyrði til að afmarka leitina. Meðal inntökuskilyrða voru greinar birtar á ensku, fjölluðu um viðveru aðstandenda í endurlífgun og hjúkrunarfræðingar starfandi á bráðamóttöku sem viðfangsefni rannsóknar. Val á greinum var sett fram með PRISMA–flæðiriti, sú leit skilaði níu fræðigreinum. \nNiðurstöður: Níu rannsóknir stóðust inntökuskilyrði. Helstu þættir sem höfðu áhrif á viðhorf hjúkrunarfræðinga til viðveru aðstandenda í endurlífgun voru starfsreynsla, sjálfstraust í endurlífgun, verkferill og fræðsla. Helstu hindranir þess að aðstandendum stæði til boða að vera viðstaddir endurlífgun ástvina sinna voru lítið rými þar sem endurlífgun fór fram, brot á trúnaði sjúklings, erfiðar tilfinningar aðstandenda og ófullnægjandi mönnun heilbrigðisstarfsmanna. \nÁlyktun: Viðhorf hjúkrunarfræðinga gagnvart viðveru aðstandenda í endurlífgun virðist fremur neikvætt. Fræðsla, aukin þjálfun, ákveðin stuðningsaðili og skrifaður verkferill um viðveru aðstandenda í endurlífgun gæti stuðlað að betra viðhorfi hjúkrunarfræðinga og þ.a.l. stuðlað að aukinni tíðni viðveru aðstandenda í endurlífgun. Þörf er á rannsóknum sem skoða einungis viðhorf hjúkrunarfræðinga til viðveru aðstandenda í endurlífgun, starfandi á bráðamóttökum á Íslandi. \nLykilorð: Aðstandendur, endurlífgun, hjúkrunarfræðingar, bráðamóttaka, viðhorf, hindranir, fræðsla og verkferill.
Source: Skemman
Authors: Elínborg Llorens Þórðardóttir, Ólöf Októsdóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7053514159
Cites: 53
Cited by:
Related to: 10