Work

Verkir eftir svæfingar og skurðaðgerðir á Landspítala. Framsýn ferilrannsókn

Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Inngangur: \nTilgangur þessarar rannsóknar var að kanna algengi verkja eftir skurðaðgerðir á Landspítala og finna mögulega áhættuþætti fyrir auknum verk. \nEfniviður og aðferðir: \nÞetta var framsýn ferilrannsókn. Öll ≥ 18 ára sem undirgengust skurðaðgerð á Landspítala sumarið 2022 og lögðust inn á vöknunardeild í kjölfarið var boðin þátttaka. Upplýsingum var safnað á aðgerðardag og degi eftir aðgerð með viðtali og leit í sjúkraskrám. \nNiðurstöður: \nÞátttakendur voru 438, þar af 244 kvenkyn. Miðgildi aldurs var 63 ár. 54% þátttakenda voru með sögu um langvinna verki fyrir aðgerð og 16% notuðu morfín-skyld verkjalyf fyrir aðgerð. Miðgildi verks á aðgerðardag var 2/10 á NRS. Verkur við legu, hreyfingu og versti verkur degi eftir aðgerð var 2/10, 4/10 og 7/10. Daginn eftir aðgerð var verkur yfir 4/10 algengastur eftir brjósta-, HNE- og kvensjúkdómaaðgerðir. Þau sem fengu tvö eða fleiri mismunandi verkjalyf fyrir eða í aðgerð fengu verki yfir 4/10 degi eftir aðgerð í 75% tilvika.Þessi hópur fékk verkjalyf í 80% tilvika eftir útskrift af vöknun. Kvenkyn (2,15 (95%Cl [0,55;0,78]), langvinnir verkir fyrir aðgerð (4,20 (95%Cl [2,40;7,51]) og meiriháttar umfang aðgerðar (2,07 (95%Cl [1,15;3,80]) höfðu aukin gagnlíkindi við verki yfir 4/10 degi eftir aðgerð en aldur í áratugum (0,66 (95%Cl [0,55;0,78]) höfðu minnkuð gagnlíkindi. \nÁlyktun: \nAðgerðarsjúklingar á Landspítala eru a.m.k. með sambærilega verki m.v. fyrri rannsóknir þegar litið er til tegundar aðgerðar, umfangs, inngrips og verkjalyfjagjafar. Þættir með tengsl við hærri verki degi eftir aðgerð eru sambærilegir niðurstöðum annarra rannsókna. Niðurstöðurnar benda á sjúklingahópa og aðgerðartegundir sem þarfnast mögulega nánara eftirlits og meðferðar vegna verkja.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7053559365
Cites: 64
Cited by:
Related to: 10