Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Lokaverkefni þetta samanstendur af greinargerð og vefsíðunni Það geta allir lært stærðfræði. Markmið verkefnisins er að leita leiða til að gefa öllum nemendum sömu tækifæri á námi og veita nemendum sem þurfa aukna aðstoð þá aðstoð sem þeir þurfa. Ástæða fyrir vali verkefnisins er að sú stærðfræðikennsla sem við sáum í okkar vettvangsnámi þótti okkur frekar einhæf og ekki ná til allra nemenda. Við teljum að nemendur sem eiga við námsörðugleika að stríða fái oft ekki þá aðstoð sem þeir þurfa og vildum við kafa dýpra í málið og finna lausn á þessu. Við munum skoða hvað stendur í Aðalnámskrá grunnskóla um nemendur með námsörðugleika og einnig skoða reglugerð um stuðning við nemendur með sérþarfir í grunnskóla. Við munum skoða hvaða áhrif ADHD, lesblinda og talnablinda hefur á stærðfræðinám og leita leiða til að stuðla að bættum námsárangri nemenda með þessa námsörðugleika. Við munum skoða kennsluhættina leiðsagnarnám og samvinnunám ásamt því að skoða vaxtar- og festuhugarfar. Við komumst að því að þessir kennsluhættir geta hentað nemendum með námsörðugleika vel þar sem þeir stuðla að því að allir nemendur nái ákveðinni hæfni á sama tíma og því minni líkur á að nemendur með námsörðugleika dragist aftur úr. Mikilvægt er að kennarar stuðli að vaxtarhugarfari hjá nemendum, þá sérstaklega nemendum með námsörðugleika þar sem það getur aukið líkur á að nemendur takist á við þær áskoranir sem námsörðugleikar þeirra eru.
Source: Skemman
Authors: Ólöf Gunnarsdóttir, Lena Mjöll Ámundadóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7053603474
