Year: 2008
Type: dissertation
Abstract: Í ritgerð þessari er fjallað um máltöku og málþroska ein- og tvítyngdra barna. Settar eru fram tvær rannsóknarspurningar, hver er munurinn á máltöku og málþroska ein- og tvítyngdra barna og hvað þurfa kennarar að vera meðvitaðir um í tengslum við málþroska og málörvun? Í ljós kom að lítill sem enginn munur er á máltöku og málþroska ein- og tvítyngdra barna og þann mun sem finna má er ekki hægt að rekja beint til tvítyngis. Kennarar verða að huga að mörgu þegar unnið er með málþroska og málörvun í leikskólum. Þeir þurfa að gera sér grein fyrir mikilvægi málþroska fyrir almennan þroska barna og vera meðvitaðir um leiðir til að örva hann. Mikilvægt er að málörvun gangi sem rauður þráður í gegnum allt leikskólastarf og að börnin fái fjölbreytt tækifæri til að nota tungumálið. Allt umhverfi barna hefur áhrif á málþroska þeirra og kennarar verða að skipuleggja leikskólaumhverfið í samræmi við það.
Source: Skemman
Authors: Droplaug Heiða Sigurjónsdóttir, Ingibjörg María Þórarinsdóttir
Language: Danish
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7053633877
