„Þetta er sárt fyrir okkur líka“. Líðan systkina og reynsla af stuðningi í kjölfar skyndilegs systkinamissis
Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Markmið rannsóknarinnar var að fá innsýn í reynslu einstaklinga sem misst hafa systkini með skyndilegum hætti. Áhersla var lögð á að skoða líðan eftirlifandi systkina, hvernig stuðning þau fengu, hvaða aðstoð gagnaðist þeim helst við sorgarúrvinnsluna og hverju þau teldu ábótavant. Þá var leitast við að tengja upplifun systkinanna við þær kenningar og rannsóknir sem settar hafa verið fram á þessu sviði. \nRannsóknin var framkvæmd með eigindlegum hætti þar sem sú aðferð er oftast notuð til að veita innsýn í reynslu og sjónarhorn einstaklinga. Tekin voru viðtöl við sex viðmælendur sem voru á aldrinum 18 til 63 ára. Viðmælendur áttu allir sameiginlega reynslu af því að hafa misst systkini á skyndilegan hátt. \nRannsóknin er fyrsta sinnar tegundar hér á landi svo vitað sé og taldi rannsakandi því mikilvægt að vekja athygli á upplifun og reynslu þessa hóps enda sýna erlendar rannsóknir fram á að eftirlifandi systkini séu hópur sem gleymist gjarnan þegar unnið er úr áföllum. \nNiðurstöður sýna fram á mikilvægi þess að veittur sé viðunandi stuðningur þegar um djúpstætt áfall eins og systkinamissi er að ræða. Ekki eru allir á sama máli um það hverskonar stuðningur og úrræði gagnast systkinum best enda hafa þarfir þessa hóps lítt verið kannaðar hvað varðar árangursrík úrræði. Þó hafa rannsóknir bent á að þörf er á stuðningi og faglegri aðstoð sem getur verið í formi ráðgjafar og sorgarmeðferðar. Bjargráðin felast að miklu leyti í stuðningi foreldra og samferðafólks. \n \nLykilorð: Systkinamissir, áföll, sorg, sorgarferli, sorgarúrvinnsla, bjargráð, stuðningur.
Source: Skemman
Author: Júlía Guðrún Björnsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Keywords: bereavement support, grief, bereaved spouses
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7053676980
