Work

Það þarf svo sterk bein til að vera kennari : velfarnaður grunnskólakennara

Year: 2019
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Kennarastarfinu fylgir álag sem getur leitt af sér streitu, kulnun og brotthvarf úr starfi. Í þessu meistaraverkefni er skoðað hvað það er sem liggur til grundvallar því að grunnskólakennurum líði vel í starfi. Rannsóknin er megindleg og markmiðið var að varpa ljósi á velfarnað (e. wellbeing) grunnskólakennara. Rannsóknin byggist á PERMA-velfarnaðarkenningunni innan jákvæðrar sálfræði, sem er regnhlífarhugtak yfir þær kenningar og rannsóknir sem leita svara við því hvað gefur lífi fólks gildi. Með kenningunni er velfarnaður skoðaður út frá fimm þáttum: jákvæðum tilfinningum, áhuga og innlifun, félagslegum tengslum, tilgangi og árangri. Stuttur kvarði sem metur velfarnað á vinnustöðum (e. the workplace PERMA-profiler) var þýddur á íslensku og síðan notaður til að meta velfarnað grunnskólakennara. Þátttakendur rannsóknarinnar voru félagsmenn í Félagi grunnskólakennara (N = 4847, svarhlutfall 42%). Mælitækið reyndist ágætlega og áreiðanleiki niðurstaðna þess var góður en ástæða þykir til að skoða þýðingar tveggja spurninga. Mælitækið ætti því að geta gefið raunhæfa mynd af ólíkum þáttum velfarnaðar í starfi. Niðurstöður sýndu að velfarnaðarþættirnir mældust með meðaltal yfir 6,5 af 10 og að neikvæð upplifun í starfi var minni en jákvæð. Tilgangur fékk hæsta meðaltal velfarnaðarþáttanna (M = 8,41). Hlutfallslega flestir kennarar gáfu þeim þætti velfarnaðar sem mælir tilgang 8 eða hærra en fæstir gáfu þættinum árangur svo háa einkunn. Velfarnaður var mestur í aldursflokknum 60 ára og eldri og hjá þeim sem voru með minnstu og mestu starfsreynsluna en lakari meðal 31–40 ára og þeirra sem voru með 5–9 ára starfsreynslu. Almenn ánægja var með fagleg tengsl, stuðning skólastjóra og stjórnunarhætti. Þær niðurstöður ásamt teymiskennslu tengdust sérstaklega félagslegum tengslum í velfarnaði. PERMA-spurningalistann fyrir vinnustaði má nýta í vinnu að bættum velfarnaði því hann sýnir hvar er þörf á inngripi og með reglubundinni fyrirlögn hans má kanna hvort inngrip hafa tilskilin áhrif.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7053799935
Cites: 54
Cited by: 1
Related to: 10