Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Inngangur: Vinsældir hlaupa hafa aukist umtalsvert meðal almennings síðastliðin ár. Þrátt fyrir að hlaup hafi almennt jákvæð áhrif á marga heilsutengda þætti þá fylgja þeim oft auknar líkur á álagsmeiðslum. \nMarkmið: Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvaða breytingar verða á hlaupahring, hreyfiferlum og kraftvægi hnéliðar hjá karlkyns hlaupurum við þreytuíhlutun og hvort breytingarnar séu háðar hlaupareynslu. \nAðferðir: Rannsóknarsnið var langsniðs hálfrannsókn með íhlutun. Þátttakendur voru 13 karlkyns áhugahlauparar á aldrinum 20-50 ára. Þeim var skipt í tvo reynsluflokka; reynda (>5 ár, n=5) og óreynda (<5 ár, n=8). Hver þátttakandi mætti tvisvar í mælingar. Í fyrri mælingunni var mjólkursýruþröskuldur áætlaður með hlaupaprófi. Í seinni mælingunni var gögnum safnað um breytingar á hreyfiferlum og kraftvægi. Þá voru endurskinskúlur festar á þátttakendur á valin landamerki áður en þeir hlupu á hraða sem var 0,2 m/s fyrir ofan þeirra mjólkursýruþröskuld, allt þar til þeir mátu áreynslu sína 19-19,5 á Borg áreynslukvarðanum. Notast var við þrívíddar hreyfigreiningarkerfi til þess að safna gögnum og greina. Fjölþátta blönduð dreifnigreining var notuð við tölfræðigreiningu. \nNiðurstöður: Beygja hnés við lendingu jókst með aukinni þreytu hjá báðum reynsluflokkum (p<0,001) en þrívíð víxlhrif fundust bæði við lendingu og mestu beygju hnés í stöðufasa milli þreytustiga, reynsluflokka og hliða (p<0,001). Í krúnusniði var kiðfótarstaða meiri hjá reyndum hlaupurum á öllum þreytustigum samanborið við óreynda hlaupara. Kraftvægi um hnéliðinn í kiðfótarstefnu var marktækt meira hjá óreyndum hlaupurum (p<0,001) og það jókst meira hjá óreyndum hlaupurum samanborið við reynda hlaupara með aukinni þreytu (p<0,001). \nÁlyktun: Reyndir hlauparar viðhalda hlaupastíl sínum betur með aukinni þreytu og eru því líklega í minni hættu á að hljóta álagsmeiðsli. Niðurstöður á kraftvægisgögnum gefa vísbendingar um að aukið kraftvægi í kiðfótarstefnu sé einn af orsakaþáttum þess að óreyndir hlauparar eru í meiri áhættu á að hljóta álagsmeiðsli en þeir sem eru með meiri reynslu.
Source: Skemman
Author: Leifur Auðunsson
Language: Icelandic
Subfield: Biomedical Engineering
Field: Engineering
Domain: Physical Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7054441208
