Áhrif meðferða í náttúrulegu umhverfi á kvíða. Fræðileg samantekt
Year: 2021
Type: dissertation
Study design: Systematic Review
Abstract: Bakgrunnur: Kvíði og kvíðaraskanir eru algengar í nútímasamfélagi og getur þeim fylgt mikil sjúkdómsbyrði. Hefðbundnar meðferðir við kvíðaröskunum hafa reynst vel í gegnum tíðina, þrátt fyrir það hefur notkun viðbótarmeðferða við kvíða aukist meðal almennings. Nýlega hefur vaknað áhugi á notkun meðferða í náttúrulegu umhverfi við kvíða en tiltölulega fáar rannsóknir hafa verið gerðar um efnið. \nTilgangur: Skoða og samþætta niðurstöður nýlegra rannsókna um notkun meðferða í náttúrulegu umhverfi við kvíða ásamt því að meta hvort meðferðir í náttúrulegu umhverfi geti haft áhrif á kvíða. \nAðferð: Kerfisbundin leit var gerð í gagnasöfnunum PubMed, Scopus og Cinahl, leitað var eftir rannsóknargreinum á ensku og íslensku sem birtar höfðu verið á árunum 2011 til 2021. PRISMA flæðirit var notað við greiningu heimilda og voru niðurstöður flokkaðar eftir nálgun rannsókna á meðferðum í náttúrulegu umhverfi. \nNiðurstöður: Átta rannsóknargreinar stóðust inntökuskilyrði. Rannsóknargreinunum var skipt niður eftir nálgun þeirra á efnið; ein fjallaði um áhugahvöt einstaklinga á notkun meðferða í náttúrulegu umhverfi; fimm fjölluðu um áhrif gönguferða í náttúrulegu umhverfi á kvíða; og tvær um áhrif annarra meðferða í náttúrulegu umhverfi á kvíða. Niðurstöður rannsókna gáfu til kynna að meðferðir í náttúrulegu umhverfi gætu haft jákvæð áhrif og dregið úr kvíða. Rannsóknir sýndu að áhugahvöt einstaklinga með kvíða gæti haft áhrif á hvort einstaklingar myndu nýta sér meðferðir í náttúrulegu umhverfi að einhverju marki. \nÁlyktun: Rannsóknir um notkun meðferða í náttúrulegu umhverfi eru enn á byrjunarstigi og er mikil þörf á frekari rannsóknum á efninu. Meðferðir í náttúrulegu umhverfi geta að einhverju leyti dregið úr kvíða og er því hægt að mæla með þeim sem viðbót við önnur hefðbundin meðferðarform. Áhugahvöt einstaklinga með kvíða er misjöfn og þörf er á að finna leiðir til að auka við áhugahvöt. Mikilvægt er að hjúkrunarfræðingar þekki til notkunar á meðferðum í náttúrulegu umhverfi við kvíða og geti leiðbeint einstaklingum um notkun þeirra.
Source: Skemman
Authors: Heiðrún Dóra Jónasdóttir, Karen Dröfn Gísladóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Social Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Keywords: natural remedies, herbal medicine, medicinal plants, traditional medicine, complementary and alternative medicine, herbal medicine efficacy, quality of evidence, research gaps, future research directions, clinician attitudes, patient attitudes, public health policy, health promotion evaluation, health promotion outcomes
SDG: Life on land
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7054459842
