Áhyggjur fósturforeldra og velferð fósturbarna : rannsókn unnin upp úr gagnasafni EU Kids Online
Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Í hverju samfélagi eru foreldrar sem hafa ekki getu eða vilja til þess að ala upp börnin sín. Í slíkum tilvikum grípur barnavernd inn í og ef ekkert annað úrræði nægir til er börnunum komið fyrir hjá fósturfjölskyldu. Börn eiga rétt á vernd gegn ofbeldi og vanrækslu og því ber ríkinu að tryggja þeim börnum viðeigandi uppeldisaðstæður og stöðugleika. Fósturbörn eru líklegri til að eiga í margvíslegum vandamálum sem geta haft áhrif á þau alla ævi. Þau fara oft á mis við heilbrigða tengslamyndun sem getur brotist út í margvíslegum hegðunarvandamálum ásamt andlegum og félagslegum erfiðleikum síðar á ævinni. Fósturbörn búa oft við þær aðstæður að flakka á milli fósturheimila. Þessi óstöðugleiki í búsetu leiðir til þess að þau skipta tíðar um skóla og stríða frekar við námserfiðleika. Fósturbörn eru einnig líklegri en önnur börn til þess að lenda í útistöðum við starfsfólk og brottrekstri úr skóla. Þekking á aðstæðum og líðan fósturbarna er víða af skornum skammti meðal starfsfólks skóla sem gerir þeim erfiðara að mæta þörfum barnanna. Fósturbörn sem búa við óöryggi og flosna snemma úr námi eru í sérstaklega veikri stöðu en þau eru líklegri til þess að vera atvinnulaus, búa við fátækt eða heimilisleysi og leiðast út í afbrot síðar á ævinni. Samvinna barnaverndar við skólayfirvöld og fósturforeldra getur reynst mikilvægur liður í að mynda sterkt teymi í kringum hvert fósturbarn sem ber hag þeirra fyrir brjósti sér. Þegar reynt er að draga úr óstöðugleika í fóstri, námsörðugleikum og hegðunarvanda fósturbarna er mikilvægt að nýta þá þekkingu sem fyrri rannsóknir gefa um málefnið. Áhersla þessarar rannsóknar var á velferð fósturbarna og áhyggjum fósturforeldra. Markmið rannsóknarinnar var að skoða hvort fósturforeldrar hafi meiri áhyggjur af börnum sínum en aðrir foreldrar mögulega vegna þeirra áhættuhópa sem þau tilheyra. Fósturbörn koma oft úr erfiðum aðstæðum og sýna meiri áhættuhegðun og því var kenning okkar sú að fósturforeldrar hefðu meiri áhyggjur af börnum sínum en aðrir foreldrar. Til að kanna þetta voru skoðuð gögn úr rannsókninni EU Kids Online Survey. Svöruðu foreldrar og fósturforeldrar spurningum í nokkrum liðum um ákveðna hegðun barna sinna ásamt spurningum um líkamlegt og andlegt heilbrigði þeirra. Auk þess voru svör barnanna um áhættuhegðun og hvatvísi borin saman við svör fósturforeldranna. Niðurstaðan leiddi í ljós að þrátt fyrir margþætta erfiðleika sem gjarnan hrjá fósturbörn þá virðast fósturforeldrar í þessari rannsókn ekki hafa meiri áhyggjur af börnum sínum en aðrir foreldrar. \n \n \nLykilorð: Fósturforeldrar, fósturbörn, tengslaröskun, áhættuhegðun, námserfiðleikar.
Source: Skemman
Authors: Sveinbjörg Sigurðardóttir 1969, Guðríður Helga Þorsteinsdóttir 1973, Þuríður Dagný Þormar 1988
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Topic: Child Welfare and Adoption
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7054490413
