Áhrif fátæktar á börn og unglinga : hvernig þjóðfélagsstaða ýtir undir sálvefræn einkenni, vanlíðan og einelti : gögn úr könnuninni Heilsa og lífskjör skólabarna (HBSC)
Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Ísland á sér langa sögu af vinnuþrælkun og sjálfsbjargarviðleitni, meira en gengur og gerist í Skandinavíu. Þó að á Íslandi mælist lág tíðni fátæktar, þá miða engar markvissar landlægar mælingar á fátækt eða ójöfnuð út frá heilsu. Gögn þessarar rannsóknar eru hluti af alþjóðlegri mælingu á heilsu og lífskjörum skólabarna (e. Health and behaviour of school-aged children(HBSC)) í sjötta, áttunda og tíunda bekk. Þessi rannsókn skoðaði sérstaklega áhrif fjárhag fjölskyldunnar á heilsu þessara barna. Niðurstöður leiddu í ljós að börn sem mátu fjárhag fjölskyldunnar verst voru líklegri til að glíma við fjöldann allan af heilsufarslegum kvillum, vanlíðan og voru líklegri til að lenda í slagsmálum auk þess að vera gerendur og þolendur eineltis. Börn úr fátækari heimilum voru líklegri til að telja samskipti við vini sína ekki mikilvæg. Jafnframt voru þau mun líklegri til að verða fyrir kynferðislegu ofbeldi, þá allar gerðir þess. Sú getgáta er lögð fram að streita og röskun á HPA-kerfi (e. hypothalamic-pituitaryadrenal, HPA-axis) eigi þátt í þessari þróun. Ritgerðin varpar fram þeirri spurningu hvort að nægilega sé gætt að jöfnuði í íslensku samfélagi og hvort raunverulegur skilningur sé á fyrirbærinu. \n \n \nLykilorð: HBSC, ójöfnuður, börn, unglingar, fátækt, streita, HPA-kerfi, heilsubrestur, sálvefræn einkenni, einelti, vanlíðan, kynferðislegt ofbeldi
Source: Skemman
Author: Stefanía María Arnardóttir 1987
Language: Icelandic
Subfield: Health
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Keywords: poverty, elementary school students, health and well-being, single-parent families, gender differences, bullying, peer relationships, physical activity, sedentary behavior, mental health, emotional well-being, self-esteem, self-concept, self-competence, self-acceptance, hypothalamic-pituitary-adrenal axis
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7054610495
