Work

Áhrif stökkbreytts EGF týrósín kínasa viðtaka á vöxt og þroskun lungnaþekju í rækt

Year: 2012
Type: dissertation
Abstract: Lungnakrabbamein er ein helsta dánarorsök vegna krabbameina í heiminum. Nýlega hefur örvandi stökkbreytingum í týrósín kínasa viðtakanum EGFR verið lýst í lungnakrabbameinum og er amínósýrubreyting á lefsíni í arginín í stöðu 858 algengasta breytingin (L858R). Gefitinib er smásameind sem er týrósín kínasa hemill og hindrar EGF viðtakann. Þeir sjúklingar sem eru með L858R stökkbreytingu á EGF viðtakanum sýna mikla svörun við gefitinib. \nRannsóknir á hlutverki EGFR og L858R stökkbreytingunni í lungnaþekjulaginu hafa fyrst og fremst beinst að krabbameinsþekjufrumulínum og hafa þær rannsóknir verið gerðar í hefðbundnum tvívíðum ræktunum. \nVA10 er lungnaþekjufrumulína með stofnfrumueiginleika sem getur við réttar frumuræktunaraðstæður myndað eðlilega þekjuvefjagerð, bæði sýndarlagskiptingu og greinótta formgerð. Slík frumulína er mjög mikilvægt tól til að rannsaka eðlilegan þroska lungaþekju og truflun á honum. \nMarkmið verkefnisins var að kanna áhrif stökkbreytts EGF viðtaka, með stökkbreytinguna L858R, á VA10 en víxlveira var notuð við innleiðinguna. Hegðun nýju frumulínunnar var borin saman við eðlilega VA10 frumulínu, bæði hvað varðar starfræna hegðun í tvívíðri ræktun og myndun greinóttrar formgerðar í þrívíðri ræktun. Áhrif gefitinibs á frumulínurnar voru einnig könnuð. \nÍ frumufjölgunarprófi vex stökkbreytta frumulínan betur og hún getur komið sér auðveldar undan sjálfstýrðum frumudauða en VA10 frumulínan. Til að kanna áhrif stökkbreytta viðtakans á þroskun í lungnaþekju var gerð þrívíð ræktun þar sem áhrif á greinótta formgerð voru könnuð. Stökkbreytta frumulínan myndar fleiri þyrpingar í þrívíðri ræktun og greinótta formgerðin einkennist af fleiri og flóknari útbungunum en í VA10. Þegar stökkbreytta frumulínan er ræktuð með gefitinibi verður mjög lítill vöxtur og engin greinótt formgerð myndast, né heldur hjá VA10. Það gefur til kynna að EGF sé mikilvægt fyrir myndun greinóttrar formgerðar.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7054795144
Cites: 84
Cited by:
Related to: 10