Work

Andvanafæðingar: Hlutverk félagsráðgjafa

Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Þessi fræðilega samantekt fjallar um andvanafæðingar og aðkomu félagsráðgjafans í því ferli. Andvanafæðingar eiga sér stað um heim allan. Á Íslandi er skilgreiningin á andvanafæðingu sú sama og hjá Alþjóðlegu heilbrigðismálastofnuninni, WHO eða allar fæðingar á börnum eftir 22. viku meðgöngu þar sem barnið fæðist látið. Ef meðgöngulengd er ekki kunn er miðað við þau börn sem vega 500 grömm eða meira. Tíðni andvanafæðinga er lægri í hátekjulöndum heldur en lágtekjulöndum. Andvanafæðing hefur áhrif á fjölskylduna í heild. Foreldrar mynda tengsl við barn sitt áður en það kemur í heiminn og þegar það deyr upplifa þeir mikla sorg. Félagsráðgjafar vinna á kvennasviði Landspítalans þar sem flestar fæðingar á Íslandi fara fram sem og flestar andvanafæðingar á landinu. Eitt af mikilvægum starfsviðum félagsráðgjafans er að veita foreldrum sálfélagslegan stuðning við missi barns. Félagsráðgjafinn hefur tækin og tólin til þess að styðja við bakið á fjölskyldum sem ganga í gegnum andvanafæðingar auk þess að búa yfir þekkingu sem þarf til þess að fræða fjölskyldur um þeirra samfélagslegu réttindi.
Source: Skemman
Author: Edda Sigurjónsdóttir 1990
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7054809986
Cites: 44
Cited by:
Related to: 10