Afleiðingar fósturvistana á mótunar- og fullorðinsárum. Umgjörð fósturvistana, afleiðingar og aðkoma félagsráðgjafa
Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Núverandi og fyrrum börn í fóstri standa mörg frammi fyrir frekari áskorunum en aðrir hópar samfélagsins. Tilgangur ritgerðarinnar er að varpa ljósi á stöðu þeirra og gera grein fyrir þeim úrræðum og stuðningi sem er til staðar til að auðvelda þeim að mæta þeim áskorunum sem þau standa frammi fyrir. Til þess verður leitast við að svara hvaða neikvæðu afleiðingar fósturvistanir hafa á mótunarár einstaklinga sem og fullorðinsár. Þar að auki að skoða hver aðkoma félagsráðgjafa er í vinnu með þessum einstaklingum. Lítið er til af íslenskum rannsóknum á afleiðingum fósturvistana og því var einnig leitað í erlendar fræðigreinar, námsbækur og almennar upplýsingar. \n\tNiðurstöður ritgerðarinnar leiddu í ljós að fósturvistanir geti haft margvíslegar neikvæðar afleiðingar á einstaklinga, bæði á mótunar- og fullorðinsárum. Í samanburði við önnur börn eru börn í fóstri með hærri tíðni læknisfræðilegra- og geðrænna vandamála, sýna frekar áhættuhegðun auk þess að vera með lakari námsárangur og í aukinni hættu á að þróa með sér tengslaröskun. Fyrrum fósturbörn eru þá jafnframt líklegri til þess að standa höllum fæti í samfélaginu á fullorðinsárum en þeir sem ekki eiga sögu um fósturvistun. Algengt er að lágt menntunarstig, fjárhagsvandi, hærri tíðni ofbeldis og heilsufarsvandi einkenni fullorðinsár fyrrum fósturbarna. Félagsráðgjafar gegna því þýðingarmiklu hlutverki í vinnu með þessum hópi einstaklinga, en félagsráðgjafar beita sér meðal annars fyrir því að tryggja einstaklingum félagslegt réttlæti og veita þeim faglegan stuðning. Niðurstöður ritgerðarinnar benda til þess að þörf sé á frekari stuðningi við fósturbörn hér á landi, sérstaklega á fullorðinsárum.
Source: Skemman
Authors: Ingibjörg Halla Ólafsdóttir, Hulda Lind Stefánsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Child Abuse and Trauma
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7054834938
