Year: 2009
Type: dissertation
Abstract: Tilgangur: Markmið rannsóknarinnar var að kanna áhrif þreytu á rafvirkni vöðva og hreyfiferla í hnébeygju \nmilli þriggja hópa einstaklinga sem voru misjafnlega vel þjálfaðir í æfingunni. Aðferðir: \nÞátttakendur framkvæmdu hnébeygjur með 80% af hámarksþyngd að uppgjöf. Vöðvarafrit \nvar skráð frá 10 vöðvum í neðri útlim og bol sem notaðir eru í hnébeygjunni. Einnig voru \nbreytingar á liðferlum skoðaðar með tveimur myndavélum. Niðurstöður: Frávikum frá \neðlilegum liðferlum fjölgaði við þreytu fyrir alla hópana. Vegalengdin sem stöngin \nferðaðist jókst marktækt milli fyrstu og síðustu endurtekningar í 80% setti og auk þess \nhægðist á lyftingarmönnum við þreytu. Mestu breytingar á vöðvarafriti við þreytu urðu á \nhámarksorku en flestir mældir vöðvar sýndu marktæka aukningu þar á uppleið. Ályktun: \nTalsverðar breytingar verða á liðferlum við þreytu og gæti verið varhugavert að æfa að \nuppgjöf. Niðurstöður benda til að með hnébeygju sé hægt að ná þjálfunaráhrifum á flesta \nmælda vöðva, sérstaklega stærsta þjóvöðva og miðlægan víðfaðmavöðva.
Source: Skemman
Authors: Haraldur B. Sigurðsson 1983, Hlöðver B. Jökulsson 1967, Vignir I. Bjarnason 1984
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Orthopedics and Sports Medicine
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7054842034
