Ávinningur af námskeiði í hugrænni atferlismeðferð fyrir hjúkrunarfræðinga
Year: 2018
Type: dissertation
Study design: Clinical Trial
Abstract: Geðsjúkdómar eru vaxandi heilbrigðisvandamál í vestrænum heimi. Lyfjameðferðir eru oft fyrsta úrræðið í geðheilbrigðisþjónustu en nú hefur áhugi aukist fyrir öðrum meðferðarformum, líkt og hugrænni atferlismeðferð (HAM). Því er mikilvægt að auka kennslu og þjálfun hjúkrunarfræðinga í gagnreyndum meðferðarformum. Hjúkrunarfræðingar hérlendis hafa haft takmörkuð tækifæri til þess að kenna og þjálfa sig í að veita slíkar viðtalsmeðferðir. Erlendis hafa hjúkrunarfræðingar fengið góða kennslu og þjálfun í viðtalsmeðferðum í áratugi. Hjúkrunarfræðingar hafa verið að veita viðtalsmeðferðir líkt og HAM erlendis með góðum árangri fyrir skjólstæðinga sína. Með námskeiðum í gagnreyndum viðtalsmeðferðum fyrir hjúkrunarfræðinga mætti stuðla að aukinni þekkingu hjúkrunarfræðinga, sem gæti leitt til betri þjónustu fyrir sjúklinga sem glíma við andleg veikindi. Árangur af slíkum námskeiðum fyrir hjúkrunarfræðinga hérlendis hefur lítið verið skoðaður, svo vitað sé til. \nTilgangur rannsóknarinnar er að meta árangur af námskeiði/kennslu í hugmyndafræði hugrænnar atferlismeðferðar fyrir hjúkrunarfræðinga á Landspítala. Þátttakendur rannsóknarinnar voru 29 hjúkrunarfræðingar sem störfuðu á barna- og geðsviði Landspítalans. Um er að ræða íhlutunar rannsókn með aðlöguðu tilraunasniði (quasi experiment). Spurningarlistar ásamt spurningum um bakgrunnsbreytur voru lagðar fyrir hjúkrunarfræðinga. Spurningalistar sem lagðir voru fyrir eru: Starfshættir í hjúkrun 1 og 2, IS-VIÐHORF og Skynjun á lífinu (sjá fylgiskjöl). Niðurstöður rannsóknarinnar sýna fram á þekkingaraukningu, aukið sjálfsöryggi, betri hæfni, ánægju og vellíðan við notkun HAM hjá íhlutunarhóp. \n \nLykilorð: Hugræn atferlismeðferð, hjúkrunarfræðingar, starfshættir, námskeið, kennsla.
Source: Skemman
Authors: Hafrós Lind Ásdísardóttir 1992, Valdís Frímann Vignisdóttir 1993
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7054852788
