Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Meginmarkmið rannsóknarinnar er að leita svara við því hvort lýðræði og valdefling birtist í matmálstímum yngstu barnanna í Matstofu og Borðstofu í leikskólanum Aðalþingi, en það voru þeir þættir sem lágu til grundvallar þegar fyrirkomulagi matmálstímanna var breytt úr hefðbundu fyrirkomulagi. Tilgangurinn var að skoða betur hvernig starfshættir kennaranna og námsumhverfi barnanna stuðla að lýðræði og valdeflingu og hvernig börnin upplifa matmálstímana í Matstofu og Borðstofu. \nRannsóknin er tilviksrannsókn sem fór fram í leikskólanum Aðalþingi í Kópavogi og þátttakendur í rannsókninni voru kennarar og börn á yngri gangi leikskólans. Börnin eru tveggja til fjögurra ára gömul (fædd á árunum 2017-2019) og var gagnaöflun í formi myndbanda og skrifa í rannsóknardagbók. \nLeikskólinn sem um ræðir starfar í anda Reggio Emilia og þar sem grunnur slíks leikskólastarfs er lýðræði ákváðu kennarar skólans fyrir nokkrum árum síðan að leggja aukna áherslu á lýðræði og valdeflingu í matmálstímum leikskólabarnanna en hafði verið gert áður. Niðurstöður benda til þess að lýðræði og valdefling birtist greinilega í matmálstímum barnanna í Matstofu og Borðstofu, þó þessir þættir birtist ekki alveg á sama hátt á báðum stöðunum og gæti það verið vegna aldursmunar barnanna. Niðurstöður benda einnig til þess að námsumhverfi barnanna í matmálstímunum stuðli að lýðræði og valdeflingu og að starfshættir kennaranna einkennist að miklu leyti af uppbyggilegu hrósi og hvatningu til barnanna. Niðurstöðurnar geta veitt leikskólakennurum og öðru starfsfólki leikskóla mikilvæga þekkingu á matmálstímum leikskólabarna og einnig almenna þekkingu á því hvað námsrými er og hvar hægt er að vinna með áherslur eins og lýðræði og valdeflingu. Einnig geta niðurstöðurnar veitt þekkingu um það hvernig börnin virðast upplifa matmálstímana á jákvæðan máta, þar sem vellíðan þeirra birtist meðal annars í samræðum þeirra á milli.
Source: Skemman
Author: Þórhildur Ýr Arnardóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7054890822
