Work

Áhugahvetjandi samtal: Leið til að bæta blóðsykurstjórn hjá einstaklingum með insúlínháða sykursýki

Year: 2014
Type: dissertation
Study design: Systematic Review
Abstract: Bakgrunnur. Til eru nokkrar aðferðir sem nýtast þegar hjálpa á fólki að ná fram breytingum á hegðun. Hugræn atferlismeðferð hefur náð gríðarlegri útbreiðslu og tekur á víðu sviði vandamála á borð við þunglyndi, kvíða og langvinna verki. Áhugahvetjandi samtal er aðferð sem á rætur sínar að rekja, líkt og hugræn atferlismeðferð, til sálfræðinnar. Það var fyrst notað í tengslum við áfengis- og vímuefnavanda en hefur á undanförnum áratug rutt sér til rúms víðar. Sem dæmi mætti nefna við meðhöndlun langvinnra sjúkdóma á borð við sykursýki og offitu. Mikilvægt er fyrir sjúkraþjálfara að kunna skil á og geta beitt sem flestum aðferðum sem hvetja fólk til meiri virkni og hreyfingar en það getur haft í för með sér bætt lífsgæði fyrir skjólstæðinga þeirra. Áhugahvetjandi samtal er ein þessara aðferða. \nTilgangur. Markmið ritgerðarinnar er að skoða árangur af notkun áhugahvetjandi samtals meðal einstaklinga með insúlínháða sykursýki. Annars vegar í tengslum við bætta blóðsykurstjórn og hins vegar við heilsueflingu þar sem megináhersla er á líkamsþjálfun. \nAðferð. Leitað var að rannsóknum með kerfisbundnum hætti frá 1983-2014 á leitarvélum á veraldarvefnum. \nNiðurstöður. Tíu rannsóknir fundust en einungis tvær uppfylltu leitarskilyrði. Þessar tvær rannsóknir gefa vísbendingar um að áhugahvetjandi samtal gagnist sem meðferð til að bæta blóðsykurstjórn. Engin rannsókn fannst um áhrif áhugahvetjandi samtals á aukna líkamsþjálfun. \nÁlyktun. Samantektin er takmörkuð því aðeins tvær rannsóknir fundust sem gefa vísbendingar um að áhugahvetjandi samtal hafi jákvæð áhrif á blóðsykurstjórn fólks með insúlínháða sykursýki. Full ástæða er til frekari rannsókna á aðferðinni í tengslum við meðferð þessara sjúklinga.
Source: Skemman
Author: Birkir Friðfinnsson 1982
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7054894663
Cites: 22
Cited by:
Related to: 10