Birting frumkvöðlaeiginleika á opinbera og almenna markaðnum. Samanburður á frumkvöðlaeiginleikum á milli opinbera og almenna markaðarins með kyn að leiðarljósi.
Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Lengi hafa verið vangaveltur um hvort að einstaklingar sem vinna hjá hinu opinbera séu að einhverju leyti öðruvísi en þeir sem starfa á almenna markaðnum. Persónuleiki hefur verið rannsakaður í þessu samhengi enda spilar persónuleiki mikilvægt hlutverk við starfsval. Upplýsingar um persónueinkenni geta þannig gagnast vinnuveitendum við að byggja upp ráðningarkerfi sem laða að viðeigandi einstaklinga. Markmið þessarar rannsóknar var að skoða birtingu frumkvöðlaeiginleika milli opinbera og almenna geirans með þætti eins og frumkvöðlaásetning, áhættusækni, stjórnrót og fimm þátta líkanið (FFM) að leiðarljósi, jafnframt var leitast eftir að meta áhrif kyns á þessa þætti. Notast var við megindlega aðferð og var gögnum safnað í gegnum spurningakönnun sem var dreift á Facebook og hjá hinum ýmsu fyrirtækjum. Þátttakendur voru í heildina 1.019 en ákveðið var að gera tilgátuprófanir eingöngu á einstaklingum sem voru í fullu starfi en þeir voru samtals 595. Niðurstöðurnar sýndu að munur er á frumkvöðlaeiginleikum milli geira. Frumkvöðlaásetningur og áhættusækni mældust hærri á almenna markaðnum en þeim opinbera. Einnig kom í ljós að karlar skoruðu hærra en konur á frumkvöðlaásetningi og áhættusækni. Þetta var í samræmi við þær tilgátur sem voru settar fram. Síðustu tvær tilgáturnar hverfðust um stjórnrótina en því var haldið fram að einstaklingar á almenna markaðnum væru frekar með innri stjórnrót en þeir sem störfuðu hjá hinu opinbera og að karlar væru líklegri en konur til að vera með innri stjórnrót en niðurstöðurnar voru ómarktækar. Niðurstöðurnar sýndu einnig að fylgni var á milli áhættusækni og allra þátta FFM, fylgnin var jákvæð fyrir víðsýni og úthverfu en neikvæð fyrir taugaveiklun, samviskusemi og samvinnuþýði. Hvað frumkvöðlaásetning varðar var fylgnin jákvæð við bæði víðsýni og áhættusækni. Innri stjórnrót var með jákvæða fylgni við úthverfu, samvinnuþýði og samviskusemi en neikvæða fylgni við taugaveiklun. Einnig kom fram að einstaklingar sem störfuðu í einkageiranum álitu áherslu á nýsköpun vera meiri á sínum vinnustað en einstaklingar sem störfuðu í opinbera geiranum. Í umræðukaflanum voru niðurstöðurnar settar í samhengi við fyrri rannsóknir og var að mestu samræmi þar á milli. Loks var farið yfir hagnýtingu rannsóknarinnar og tillögur settar fram um frekari rannsóknir.
Source: Skemman
Author: Selma Dagmar Óskarsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7054901282
