Work

„Að geta nýtt það að vera öðruvísi sem styrkleika” : reynsla og upplifun einstaklinga af erlendum uppruna af því að búa í íslensku samfélagi

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Ritgerð þessi er tvískipt, annars vegar er fræðilegur bakgrunnur og hins vegar er rannsóknarskýrsla. Tilgangur rannsóknarinnar er að kanna reynslu og upplifun einstaklinga af erlendum uppruna af því að búa í íslensku samfélagi. Rannsakendur verkefnisins eru af erlendum uppruna og hafa þar með þekkingu og reynslu af þessari umræðu. Í fræðilega hlutanum er fjallað um mikilvægi fræðslu, fjölmenningarkennslu og inngildingu, umfjöllun um samskiptahæfni, einelti og fordóma. Hvernig hægt er að styrkja sjálfsmynd sína er einnig mjög mikilvægur þáttur. Rannsóknin er eigindleg viðtalsrannsókn þar sem tekin voru fjögur viðtöl við Íslendinga með erlendan bakgrunn. Helstu niðurstöður gefa til kynna að fólk af erlendum uppruna hér á landi upplifi fordóma á einn eða annan hátt og það sýnir hversu mikilvægt er að hafa sterka sjálfsmynd til að takast á við fordóma og öráreitni í daglegu lífi. \nLykilorð: Einstaklingar af erlendum uppruna, fordómar, öráreitni, sterk sjálfsmynd og fjölmenning
Source: Skemman
Authors: Stella Tong Haraldsdóttir, Tanja Sigmundsdóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7055011503
Cites: 14
Cited by:
Related to: 10