Work

Bláar bakteríur : litarefnaframleiðsla baktería úr íslenskri náttúru

Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Náttúruleg litarefni hafa verið notuð til að lita heiminn síðan á fornöld. Litarefnin komu frá steinum, skordýrum, plöntum og dýrum. Um miðja 19. öld komu nýsmíðuð litarefni á markað, þau voru ódýrari og betri litir til notkunar. Fljótlega tóku nýsmíðuð litarefni við af þeim náttúrulegu og gríðarleg þróun varð í litarefnaframleiðslu. Síðan þá hafa nýsmíðuð litarefni verið yfirgnæfandi á markaði þrátt fyrir gagnrýni á þau varðanda hættuleg áhrif á heilsu manna, dýra og umhverfi. Fólk horfir meira til náttúrunnar í dag til að finna öruggari og umhverfisvænni litarefni í til dæmis matvæli, föt og snyrtivörur. Bakteríu litarefni eru spennandi kostur að skoða, oft talinn örugg, umhverfisvænni og brotna hraðar niður í náttúruinni. Þetta hefur sett af stað rannsóknir sem beinast að betri leiðum að rækta bakteríur til litarframleiðslu. Bæði að leita af nýjum stofnum, finna bestu ræktunarskilyrði fyrir litarefnaframleiðslu og úrdrátt og hreinsun efnanna. \nMarkmið rannsóknarinnar var að leita af bláum/fjólubláum litarefnum sem bakteríur mynda og gætu hentað í ýmsa framleiðslu og iðnað. Rannsóknarspurningin er hvort það sé mögulegt fyrir bakteríur úr íslenskri náttúru að mynda blá/fjólublá litarefni og hvaða þættir eru það sem hafa áhrif á litarefnaframleiðslu baktería? \nÍ þessu verkefni var ákveðið að velja níu stofna úr íslenskri náttúru sem allir höfðu sýnt vísbendingar um bláan/fjólubláan lit við einangrun. Rannsakaðir voru þeir þættir sem hafa áhrif á heimtur litarefna, eins og hitastig, kolvetnis- og próteingjafar og styrkir þeirra. Rannsakað var hvort þessir stofnar gætu myndað litarefni sem henta í ýmsa framleiðslu og iðnað. Prófað var einfaldur úrdráttur úr stofni. Tveir stofnar sýndu þann eiginleika að mynda blá litarefni og einn stofn fjólublátt litarefni. Bestu skilyrði fyrir framleiðslu á fjólubláa efninu úr stofn S140203 var mikið magn af próteini (10g/L tryptone), glúkósi (7.5 g/L) sem kolvetnisgjafa og ræktað við 15°C. Stofnar sem sýndu blá litarefni vildu lægra hitastig 5°C. Stofn JF13-01 sýndi mestu litarefnaframleiðslu við 5°C eftir þrjár vikur á glúkósa og tryptone (1 g/L). Stofn EF13-18 sýndi mestu litarefnaframleiðslu við 5°C á súkrósa og tryptone. \n \nLykilorð: Bakteríu, Blá/fjólublá Litarefni, Violacein, náttúra.
Source: Skemman
Author: Bjarki Rafn Magnússon
Language: Hungarian
Subfield: Biotechnology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7055062772
Cites: 20
Cited by:
Related to: 10