Brostnar væntingar: Áhrif ófrjósemi á lífsgæði og reynsla af notkun FertiQoL
Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Barneignir eru eitt af meginmarkmiðum lífsins hjá mörgum. Þó eru ekki allir svo lánsamir að geta með auðveldum hætti getið og eignast börn því að eitt af hverjum sex pörum á heimsvísu gengur í gegnum einhvers konar erfiðleika tengda ófrjósemi að minnsta kosti einu sinni á frjósemistímabilinu. Á Íslandi eru rúmlega 3% allra fæddra barna getin með aðstoð tæknifrjóvgunar. \nTilgangur þessarar fræðilegu samantektar var að skoða að hvaða leyti ófrjósemi hefur áhrif á lífsgæði fólks en mörg pör hætta tæknifrjóvgunarmeðferð vegna sálrænna erfiðleika. Einnig að skoða bakgrunn FertiQoL spurningalistans miðað við fyrri rannsóknir þar sem til stendur að taka hann upp hér á landi. Að lokum var ætlunin að kanna hvaða úrbætur í þjónustu gætu stuðlað að bættum lífsgæðum fyrir þennan hóp. \nHelstu niðurstöður voru þær að FertiQol er áreiðanlegt mælitæki. Við gerð spurningalistans var tekin alþjóðleg og þverfræðileg nálgun, auk þess sem sérfræðingar í fjölgunarfræðum komu að gerð listans og fengið var álit frá fólki sem glímir við ófrjósemi. Þykja þetta allt miklir kostir. Verið er að þýða FertiQoL mælitækið eftir sérstöku gæðaferli yfir á íslensku. Samantektin leiddi einnig í ljós að ófrjósemi hefur meiri áhrif á konur en karla, mest áhrif á andlega líðan og minnst áhrif á parasambandið. \nMikilvægt er að heilbrigðisstarfsfólk sé vakandi fyrir áhrifum ófrjósemi á lífsgæði og gæti FertiQoL verið gott hjálpartæki til að meta þessi áhrif. Ráðlegt væri að auka samvinnu sálffræðinga og heilbrigðisstarfsfólks á tæknifrjóvgunarstöðvum og að skima fyrir þeim sem þurfa á sérhæfðri sálfræðiaðstoð að halda. Einnig væri hægt að bæta upplýsingagjöf til skjólstæðinga, viðmót starfsfólks og samfellu í meðferð en aukin upplýsingagjöf frá starfsfólki á tæknifrjóvgunardeild, til dæmis með úthlutun fræðsluefnis um stuðningshópa, sálfræðiaðstoð og aðferðir til sjálfshjálpar, gætu bætt líðan einstaklinga í ófrjósemismeðferð. Þetta efni hefur lítið verið rannsakað hér á Íslandi og þörf er á athugunum til að vita hvernig þessi mál standa hér á landi.
Source: Skemman
Authors: Berglind Anna Karlsdóttir 1991, Inga María Árnadóttir 1991
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Reproductive Medicine
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7055196523
