Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Ritgerð þessi er 40 ECTS eininga verkefni til fullnustu M.Art. prófs við Háskólann á Akureyri, kennaradeild, hug –og félagsvísindasvið. Markmið verksins er að öðlast betri skilning á taugaþroskaröskuninni ADHD sem lengi vel var aðeins talin finnast meðal barna og unglinga, en er nú viðurkennt að fylgt getur fólki alla ævi. Nú um stundir beina fræðimenn sjónum sínum í æ ríkara mæli að mikilvægi þess að hafist sé sem fyrst handa til aðstoðar þeim sem glíma við ADHD, með það að markmiði að draga úr neikvæðum áhrifum hennar. \nVerkinu er ætlað að varpa ljósi á birtingarmyndir ADHD og hvað hugsanlega veldur þeirri röskun. Til að fá sem gleggsta mynd af lífi barna með ADHD og fjölskyldna þeirra var gerð eigindleg rannsókn þar sem tekin voru viðtöl við fjögur börn sem greind eru með ADHD, mæður þeirra og deildarstjóra í skólunum barnanna. \nNiðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að börn með ADHD eiga undir högg að sækja félagslega og í flestum tilfellum einnig í námi. Mæðurnar hafa áhyggjur af stöðu barna sinna og segja uppeldi þeirra krefjast þrotlausrar vinnu. Þeim finnst skorta á þekkingu meðal almennings og skólafólks á vandanum og vegna þessa örli á fordómum í garð barna með ADHD og foreldra þeirra. Í ljós kom að innan grunnskóla er mikill vilji til að koma sem best til móts við þessa nemendur, en ytri aðstæður gera það ekki alltaf kleift. \nAf niðurstöðunum má draga þá ályktun að auka þurfi almenna fræðslu um ADHD svo þeir sem haldnir eru þeirri röskun mæti frekar skilningi. Börn með ADHD þurfa á mikilli og stöðugri aðstoð að halda innan skóla jafnt sem utan. Þessi aðstoð má ekki vera tilviljanakennd, samvinna milli skóla og heimila barna með ADHD er algjör grundvallarþáttur í átt að bættri velferð þeirra.
Source: Skemman
Author: Helga Sigurðardóttir 1954
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Psychiatry and Mental health
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7055273781
