Dauðakippir feðraveldisins?: Karlmennska og berskjöldun ungra karlmanna í nærumhverfi þeirra
Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Í kjölfar mikilla straumhvarfa í pólitískri, fræðilegri og feminískri orðræðu um kyntjáningu, hafa karlmennska og neikvæð áhrif hennar verið í ákveðnum brennipunkti. Hér verða skoðaðar karlmennskuhugmyndir, í tengslum við samkynja vináttu karlmanna, og reynt að varpa ljósi á áhrif þeirra á tilfinningaúrvinnslu og berskjöldun karlmanna. Einnig verður athugað hvernig tilfinningaúrvinnslu í kjölfar áfalla er háttað. Þá verður skoðað hvort að vinátta karla styður við eldri karlmennskuhugmyndir eða hvort hún stuðlar að höfnun þeirra. Það var gert með því að taka fimm hálfstöðluð djúpviðtöl við fimm íslenska karlmenn á aldrinum 18 til 35 ára. Niðurstöður gáfu til kynna að viðmælendur notist við mismunandi bjargráð til að vinna úr áföllum sem þeir hafa orðið fyrir, berskjöldun var mismikilvæg í því ferli að þeirra mati. Einnig kom í ljós ákveðin togstreita á milli eldri karlmennskuhugmynda og nýrri tegunda karlmennsku hjá viðmælendum, sem stuðlaði að mismunandi leiðum til úrvinnslu. Tengsl karlmannanna höfðu mismunandi áhrif á úrvinnsluna, en helst leituðu þeir til mæðra sinna til þess að fá andlegan stuðning. Að lokum, var athyglisvert að allir viðmælendur höfðu sótt sér sálfræðiaðstoð á einhverjum tímapunkti yfir ævina, þar af voru fjórir á fullorðinsárunum. Í samanbuði við fyrri rannsókni, gefa þessar niðurstöður til kynna breytingu á væntingum karlmennskunnar þó enn glitti í áhrif eldri gerða karlmennsku.
Source: Skemman
Author: Bergþóra Harpa Stefánsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Gender Studies
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7055782955
