Work

„Ég væri ekki á sama stað félagslega ef það væri áfangakerfi“ : áskoranir og tækifæri við breytta námsskipan hjá nýnemum í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Fræðimenn á sviði menntarannsókna hafa sýnt fram á að það að gera breytingar í skólakerfinu getur verið snúin framkvæmd. Þeir hafa sett fram tillögur að ferli sem stutt getur skólastjórnendur í breytingavinnu þannig að líklegra sé að breyting verði á menningu og starfsháttum skipulagsheildarinnar til langframa. Það er ljóst að breytingar innan framhaldsskólanna eru almennt hægfara og umtalsverðar breytingar frekar fátíðar. Ein af stóru breytingunum á síðustu árum er stytting á námi til stúdentsprófs árið 2015, en innleiðingarferli dróst verulega á langinn vegna andstöðu hagsmunaaðila. Breytingar sem þessar eru misjafnlega umfangsmiklar og þeim fylgja óneitanlega bæði hindranir og tækifæri innan skólasamfélagsins. \nHeimsfaraldur COVID-19 hafði töluverð áhrif á kennslu í framhaldsskólum sem varð til þess að stjórnendur við Flensborgarskólann í Hafnarfirði brugðu á það ráð að setja nýnema í bekki fyrsta námsárið til að eiga möguleika á því að kenna þeim í húsi kæmi aftur til lokana vegna samkomutakmarka. Með þessari breytingu á námsskipan kom í ljós að margt annað en möguleikar á staðkennslu studdi breytingar, líkt og betri tengslamyndun á milli nemenda og aukin skuldbinding við nám, og ákveðið var að setja í gang skólaþróunarverkefni til tveggja ára sem miðaði að því að innleiða bekkjarkerfi á fyrsta ári við skólann. \nRannsóknin byggir á viðtölum við tvo stjórnendur, fimm kennara og tvo rýnihópa nemenda en hvor hópur samanstóð af 5 nemendum. Kennarar voru valdir með tilviljanakenndu úrtaki en nemendur valdir með lagskiptu úrtaki, skipt eftir bekkjum, með aðstoð umsjónarkennara sem óskuðu eftir sjálfboðaliðum. Stjórnendur eru þeir sem leggja breytingarnar til og framfylgja innleiðingu þeirra. Svör þeirra geta verið greinanleg þar sem fáir einstaklingar eru sem stjórnendur við skólann. Þrátt fyrir greinanleika í gögnum samþykktu þeir þátttöku í þessari rannsókn. \nMeginniðurstaða rannsóknarinnar sýnir að bekkjarkerfi á fyrsta ári er raunhæft og jafnframt skilvirkt námsfyrirkomulag. Breytt námsfyrirkomulag heldur vel utan um nemendur m.t.t. vellíðunar og tengslamyndunar, styrkir þá námslega með utanumhaldi kennara og jafningjastuðningi og eykur skuldbindingu þeirra til náms. Breytingarferli innan skólans tók á vegna andstöðu hóps kennara en markvisst samtal um þróun bekkjarkerfisins hefur átt sér stað. Einnig hefur jafningjastuðningur á milli kennara reynst vel. Stjórnendur studdust við kenningar fræðimanna sem nýttust vel sem leiðsögn í þeim breytingum sem gerðar voru. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa tilefni til frekari rannsókna í framtíðinni, jafnvel þegar allir nemendur skólans hafa tilheyrt bekkjarkerfi á sínu fyrsta ári. Þá mætti sérstaklega rannsaka hvort breytingar hafi orðið á skólabrag og skuldbindingu til náms, sem og skoða hvernig nemendur upplifa breytinguna við að fara úr bekk og yfir í áfangakerfi eftir fyrsta árið í bekkjarkerfi. Verði áframhald á þessu námsfyrirkomulagi er mikilvægt að halda áfram að styðja vel við það og knýja það áfram innan skólans. \nÞað að ánægja skuli ríkja með breytinguna ætti að gefa þeim sem áhuga hafa á skólaþróun byr undir báða vængi. Að ráðast í verkefni sem þetta og ná árangri sýnir fram á að með því að fylgja ferlum um farsælar breytingar eru möguleikar á fjölbreyttu skólastarfi í framhaldsskólum landsins enn betri og breytingar líklegri til að eiga sér stað.
Source: Skemman
Author: Júlía Jörgensen
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7056255875
Cites: 40
Cited by:
Related to: 10